Þjálfari Gummersbach hundfúll út í Alfreð og Kiel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2011 09:45 Patrick Wiencek, leikmaður Gummersbach. Nordic Photos / Bongarts
Sead Hasanefendic, þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Gummersbach, er ekki sáttur við Alfreð Gíslason, kollega sinn hjá Kiel. Segir hann að Kiel hafi samið við leikmanninn efnilega, Patrick Wiencek, án vitundar sinnar. Samkvæmt fréttum í þýskum fjölmiðlum mun Wiencek ganga til liðs við Kiel þegar að samningur hans við Gummersbach rennur út árið 2012. „Við viljum ræða við þá aðila hjá Kiel sem bera ábyrgð á þessu," sagði Hasanefendic við þýska fjömiðla. „Þeir þurfa að útskýra fyrir okkur af hverju þeir gerðu þetta án okkar vitundar. Sérstaklega olli Alfreð Gíslason mér miklum vonbrigðum. Hann þjálfaði eitt sinn Gummersbach og veit hversu mikilvægur svona ungur leikmaður er fyrir félag eins og okkar. Svona viðskiptahættir eiga ekkert skylt við sanngirni eða íþróttamennsku." Gummerbach hefur nú sett Wiencek út úr liðinu og hótar Hasanefendic því að nema að Kiel komist að samkomulagi um að kaupa kappann í sumar muni hann fá að sitja upp í stúku þar til að samningurinn rennur út eftir eitt og hálft ár. Skemmst er að minnast þess þegar að Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin hótaði að gera slíkt hið sama við Alexander Petersson þegar hann samdi við Rhein-Neckar Löwen. Hins vegar hefur Alexander spilað með Berlin í undanförnum leikjum.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira