Willum Þór: Gleymdum okkur í dekkun í eitt skipti Valur Smári Heimisson skrifar 21. ágúst 2011 20:29 Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Vilhelm
Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur var nokkuð sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir 1-2 tap á móti ÍBV í Vestmannaeyjum í dag. Keflvíkingar stjórnuðum leiknum nær allan fyrri hálfleikinn og byrjuðu síðari hálfleikinn einnig betur en það dugði þeim ekki til að taka stig á Hásteinsvellinum. „Það er sárt að hafa kastað frá stigi eða jafnvel stigum hér í dag. Við vorum betri í fyrri hálfleik en náðum ekki að skora. Við vorum ákveðnir að koma af krafti inn í seinni hálfleikinn því við vissum að þeir myndu ekki gefa eftir. Við gerðum það, við vorum líklegri og betri og náðum svo að skora," sagði Willum Þór. „Þá fór þjálfari þeirra í að breyta skipulaginu, setja fleiri menn í sóknina og það hefði auðvitað átt að gefa okkur færi, sem það gerði þegar við fengum dauðafæri í stöðunni 1–1. Við héldum ágætlega sjó í seinni hálfleik en misstum aðeins einbeitninguna og þeir nýttu sér það,“ sagði Willum. Sigurbergur Elíasson kom inná strax í upphafi síðari hálfleiks og hressti upp á sóknarleik Keflvíkinga. Hann lagði upp markið sem Magnús Þórir skoraði. „Já ég var ánægður með þá skiptingu. Sigurbergur kom flottur inn í þennan leik og ég er mjög ánægður með hann í dag. Það var hinsvegar slæmt að missa Arnór útaf því hann var búinn að spila vel,“ sagði Willum Þór. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var mikið að færa til sína leikmenn í leiknum. Andri Ólafsson byrjaði frammi en var svo settur í miðvörðinn svo dæmi sé tekið. „Ég held að hann hafi verið tilneyddur til að breyta sínu liði því hann sá að þetta var ekki að ganga. Við stjórnuðum nær öllum fyrri hálfleik og leikurinn var lengi vel í jafnvægi í stöðunni 1–1 en svo gleymdum við okkur í dekkun þarna í eitt skipti og þeir nýttu sér það," sagði Willum Þór að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Fleiri fréttir Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Sjá meira