Vottaði unnustunni samúð eftir morðið 8. febrúar 2011 04:00 Gunnar Rúnar var leiddur í handjárnum í dómsal. Hann baðst undan því að sitja aðalmeðferðina.Frettabladid/GVA
Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í ágúst á síðasta ári, sendi unnustu Hannesar samúðarkveðjur og hringdi í hana eftir verknaðinn. Þetta kom fram í máli Jóns Egilssonar, réttargæslumanns foreldra Hannesar Þórs, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Ákæruvaldið og verjandi Gunnars Rúnars tókust á um sakhæfi hans við flutning málsins. Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari krafðist sextán ára fangelsisdóms yfir Gunnari Rúnari og til vara vistunar á viðeigandi stofnun. Hún taldi ekki hafa verið sýnt fram á að hann væri ósakhæfur. Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi sakborningsins, krafðist þess að hann yrði sýknaður á grundvelli ósakhæfis eða að hann yrði dæmdur til vægustu refsingar. Kaus að tjá sig ekki fjöldi manns Fjöldi manns beið þess að dómsalurinn yrði opnaður í gærmorgun. Tveir dómsalir voru teknir undir aðalmeðferðina til að allir gætu hlýtt á hana sem þess óskuðu. Þrír geðlæknar, sem mátu sakhæfi Gunnars Rúnars, mættu fyrir dóminn og gáfu skýrslu. Sjálfur mætti Gunnar Rúnar og staðfesti lögregluskýrslur varðandi málið. Hann kaus að tjá sig ekki fyrir dómi og jafnframt að vera ekki viðstaddur réttarhöldin. Hann var því leiddur í burtu að því búnu. Geðlæknarnir þrír voru á einu máli um að Gunnar Rúnar væri ekki sakhæfur. Helgi Garðarsson, geðlæknir á Landspítalanum, sagði að Gunnar Rúnar hefði þróað með sér sjúklegt sálarlíf með djúpstæðu rofi á persónuleika í kjölfar þess að faðir hans svipti sig lífi þegar hann var níu ára. Fram til þess hefði hann verið ofureðlilegt barn. Síðar hefði hann þróað með sér tvo persónuleika, annars vegar verið hinn eðlilegi, heilbrigði og dagfarsprúði piltur en hins vegar persónuleiki á djúpu geðrofsplani. Sjúkleg þráhyggjuást Sú ást sem hann virtist hafa lagt á unnustu Hannesar Þórs hefði einkennst af sjúklegri þráhyggju á geðrofsgrunni. Hann hefði dregið sig inn í einsemdina og ætlað sér að klára sitt líf upp á eigin spýtur. Hjá honum hefði sprottið upp mjög sjúkleg hugsun um að ryðja Hannesi úr vegi til að geta notið unnustu hans. Gunnar Rúnar hefði sett jafnaðarmerki milli hugsunar og verknaðar. Eftir verknaðinn hefði hann trúað því að bara ef hann hristi hausinn nógu lengi myndi hann losna við óhugnaðinn. Tómas Zoëga geðlæknir tók að mestu í sama streng og Helgi. Hann rakti hvernig Gunnar Rúnar myndaði félagsleg tengsl eftir að unnusta Hannesar Þórs, sem var bekkjarsystir hans, bauð honum í partí heima hjá Hannesi og tók upp kunningsskap við hann. Gunnar Rúnar hefði orðið ástfanginn af unnustunni og borið eins konar ástaræði til hennar. Tómas greindi frá því að Gunnar Rúnar hefði sagt sér að hann hefði verið „brosandi og liðið vel" þegar hann var á leiðinni að bana Hannesi. Varð hamslaus í viðtali Kristinn Tómasson geðlæknir greindi frá því að hann og Tómas hefðu orðið „hálfhræddir" við Gunnar Rúnar þegar hann brotnaði saman í viðtali við þá. Hann hefði orðið hamslaus. Allir geðlæknarnir voru á einu máli um að Gunnar Rúnar gæti verið hættulegur umhverfi sínu í núverandi ástandi. jss@frettabladid.is
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Tengdar fréttir Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44 Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23 Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21 Morðmálið lagt í dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið. 7. febrúar 2011 14:33 Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46 Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06 Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32 Gunnar Rúnar með tvískiptan persónuleika - afar umdeild röskun Samkvæmt niðurstöðum Helga Garðars Garðarsson, geðlæknis, þá er Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni, með tvískiptan persónuleika. Vísir ræddi við Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni göngudeildar og bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, en hún segist hafa séð örfá tilvik á sínum 25 ára ferli. 7. febrúar 2011 15:39 „Þú ert svo mikill aumingi“ Saksóknari telur að ekki hafi verið sýnt fram á ósakhæfi Gunnars Rúnars Sigurþórssonar og krefst þess að hann verði dæmdur fyrir morðið á Hannesi Helgasyni í 16 ára fangelsi. Öll fjölskylda Hannesar fylgdist með aðalmeðferðinni sem fór fram í dag. 7. febrúar 2011 20:01 Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Innlent Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Erlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Innlent Fleiri fréttir Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Sjá meira
Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44
Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23
Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21
Morðmálið lagt í dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið. 7. febrúar 2011 14:33
Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46
Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06
Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32
Gunnar Rúnar með tvískiptan persónuleika - afar umdeild röskun Samkvæmt niðurstöðum Helga Garðars Garðarsson, geðlæknis, þá er Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni, með tvískiptan persónuleika. Vísir ræddi við Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni göngudeildar og bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, en hún segist hafa séð örfá tilvik á sínum 25 ára ferli. 7. febrúar 2011 15:39
„Þú ert svo mikill aumingi“ Saksóknari telur að ekki hafi verið sýnt fram á ósakhæfi Gunnars Rúnars Sigurþórssonar og krefst þess að hann verði dæmdur fyrir morðið á Hannesi Helgasyni í 16 ára fangelsi. Öll fjölskylda Hannesar fylgdist með aðalmeðferðinni sem fór fram í dag. 7. febrúar 2011 20:01