Já, það er ekki eins gaman eftir... Sverrir Björnsson skrifar 9. apríl 2011 06:30 Jón Ásgeir Jóhannesson er alveg með það, sá hitti naglann á höfuðið hjá Sveppa og Audda um daginn. „Auðvitað er þessi tími eftir hrun búinn að vera ekkert skemmtilegur tími,“ sagði hann. Hárbeitt analýsa hjá Jóni. Ekki eins gaman eftir að þjóðin var „tekin“ eins og Auddi segir og sérstaklega lítið gaman núna þegar þjóð Ragnars Reykáss sem hefur hringsnúist í stofustólnum þarf að taka afgerandi ákvörðun. Eins og kemur fram í þeirri góðu bók Rannsóknarskýrslu Alþingis var þjóðin „tekin“ síðasta eina og hálfa árið fyrir hrun. Þegar bankarnir og útrásarfyrirtækin gátu ekki lengur fjármagnað sig erlendis. Þá voru góð ráð dýr, en útrásarvíkingarnir fundu sannkallað þjóðráð: Að gerast innrásarvíkingar og halda fyrirtækjum sínum á floti með sparifé og eignum fólksins í landinu. Hófst nú „takan“ mikla með smölun fjár í réttir útrásarfyrirtækjanna, banka og sjóði. Farið var á milli byggðarlaga með fundi sem minntu meira á samkomur hjá Krossinum en viðskiptafundi eins og nýlegar hörmungarsögur bera vitni um. Endurfjármögnun var töfraorðið og farið var hamförum í skuldsetningu fyrirtækja. Mestallt fémætt í landinu var ryksugað upp. Sorglegt að á þessum tíma vissu ráðamenn að staða gömlu bankanna var vonlaus. Fyrrverandi seðlabankastjóri hefur marglýst því yfir að hann hafi vitað það. Eðlilegt að bankastjórinn í banka bankanna viti þetta fyrstur og ríkisstjórarnir vissu það í upphafi hrunársins. Datt engu þeirra í hug að stöðva landhreinsunina? Staðan væri mun betri ef þetta hefði verið stöðvað fyrr, þar hefði munað mikið um hvern mánuð. Ég var t.d. ekki „tekinn“ fyrr en seint um sumarið. Þá fór ég til ráðgjafa míns hjá bankanum og bað hann að losa það sem hægt væri og kaupa gjaldeyri. Hann taldi mun betra fyrir mig að leggja þetta inn á erlendan skuldabréfasjóð. „Hvað er á bak við hann?“ spyr ég. „Breitt safn skuldabréfa frá stórum traustum erlendum fyrirtækjum, þá færðu vexti á féð en getur alltaf losað það.“ O.K. segi ég. Þetta var gaman, sloppinn frá íslensku undrafyrirtækjunum, sem ég hafði reyndar sem reglu að eiga aldrei neitt í eins og ráðgjafi minn vissi mætavel. Svo hrynja bankarnir en ég er hinn rólegasti. Eftir hrun kemur í ljós að svo til allt er tapað. Í sjóðnum reyndust vera skuldabréf í erlendri mynt gefin út af Baugi. FL Group og fleiri íslenskum útrásarfyrirtækjum, einskis virði pappírar. Ekki mjög gaman. Tjón mitt þó bærilegra en þeirra sem voru narraðir til að skuldsetja sig. Því miður er þetta bara ein ljót saga af tugum þúsunda um hvernig fólk var lokkað, ginnt og platað í stærstu hreinsunum íslandssögunnar. Skúringarnar fengu að fara fram átölulaust og þessa vegna er miklu minna gaman á Íslandi í dag. Miklu minna gaman að hafa ekki lengur efni á þotu, snekkju, bíl, reiðhjóli, skóm... miklu miklu minna gaman. Því miður fyrir þjóðina voru líka settar upp afkastamiklar fjársugur utan landsteinanna. Vefreikningar með óeðlilega háa vexti, hannaðir til að ná peningum beint af óupplýstu fólki á Englandi og í Hollandi. Eftir hrun vildi þetta fólk peningana sem það lagði í svikamylluna til baka. Skiljanlegt, sérstaklega í ljósi þess að þeir sem áttu inni á reikningum í bönkunum hér fengu borgað upp í topp. Ekkert þak á því, bara tekið risavaxið erlent lán sem allir borga saman, líka þeir sem áttu engar innistæður, bara skuldir sem tvöfölduðust. Stjórnvöld lofuðu strax að semja um að borga tap enskra og hollenskra sparifjáreigenda. Ergo: Eftir að vera „tekin“ í hreinsuninni, og „tekin“ aftur í endurreisninni, á fólk að borga það sem svikahrappar þess náðu erlendis. Engin furða hvað stólpípan er orðin vinsæl. Ég hef snúist eins og skopparakringla í Icesave-málinu enda býsna snúið mál, „lose-lose situation“. Annars vegar að borga óræða en stóra upphæð sem við eigum ekki fyrir og ber kannski ekki að borga. Hins vegar að lenda í frystikistu alþjóða fjárvaldsins ef við förum dómstólaleiðina. (Fyrstu einkenni kuldans; nístandi skortur á brúðkaupsboðskorti á Bessastöðum.) Praktíska spurningin er hvor leiðin felur í sér stærra tap og ekki er svarið við því á hreinu. Kannski er sjálfsvirðingin það eina sem hægt er að bjarga í Icesave-atkvæðagreiðslunni. Ég þarf þá bara að velja hvort ég vil bjarga virðingu íslenskra stjórnvalda eða minni eigin. Eftir það sem á undan er gengið verður það auðvelt val. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun