Landsdómur hafnar kröfu Geirs 15. júní 2011 05:45 Geir H. Haarde Landsdómur hafnar málatilbúnaði hans.
Landsdómur hafnaði fyrir síðustu helgi kröfu Geirs H. Haarde þess efnis að átta þingkjörnir fulltrúar í dómnum vikju sæti við meðferð máls Alþingis á hendur honum. Geir krafðist þess að þeir vikju, enda mætti draga hæfi þeirra í efa þar sem Alþingi hefði ákveðið að framlengja skipunartíma þeirra eftir að málareksturinn hefði verið farinn af stað. Dómurinn fellst ekki á þennan málatilbúnað. Dómararnir átta hefðu verið kjörnir í dóminn mörgum árum áður en ákveðið var að sækja Geir til saka og ekki þyrfti að efast um hæfi þeirra þótt tíminn hefði verið framlengdur. Ekki verður frekari málarekstur fyrir landsdómi fyrr en í haust, þegar tekist verður á um frávísunarkröfu Geirs. Hann skilar greinargerð sinni í ágúst og í kjölfarið vinnur saksóknarinn greinargerð um kröfuna. Málflutningur um hana er áætlaður 5. september. Búast má við að dómurinn taki sér nokkrar vikur í að úrskurða um frávísunarkröfuna. Verði henni hafnað fær Geir nokkrar vikur til að skila greinargerð um efnisatriði málsins, og verjandinn í kjölfarið tíma til að skila sinni greinargerð. Ekki má því búast við að málflutningur í málinu sjálfu hefjist fyrr en á nýju ári, fari það á annað borð alla leið. - sh
Landsdómur Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira