Guðmundur: Verðum vonandi með réttu svörin Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar 17. janúar 2011 09:00 Guðmundur Guðmundsson lætur hér í sér heyra á hliðarlínunni gegn Brasilíu. Mynd/Valli
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fagnar því að hafa fengið heilan aukadag til þess að undirbúa lið sitt fyrir leikinn gegn Japan í kvöld. Japanar hafa komið skemmtilega á óvart á HM og hreinlega pökkuðu Austurríki saman á laugardag. Það gerir ekki hvaða lið sem er. Leikurinn í kvöld verður því alls ekki auðveldur fyrir íslenska liðið rétt eins og margir bjuggust við fyrir mót. „Greiningardeild landsliðsins var að í nánast alla nótt eftir Brasilíu-leikinn að störfum enda þarf að undirbúa sig vel fyrir þennan slag. Við erum búnir að greina báða leiki Japana á mótinu og héldum fund í morgun [í gær] þar sem við skoðuðum bæði varnar- og sóknarleik liðsins. Við vonumst því til að mæta með réttu hernaðaráætlunina í leikinn," segir Guðmundur en það ber margt að varast í leik Japana. „Við þurfum að vera klárir í framliggjandi vörn þeirra. Það þarf að leysa með hlaupum úr hornum og öðru. Í vörninni má svo ekki falla í þá gryfju að falla of aftarlega gegn þeim. Austurríkismenn reyndu og skaðbrenndu sig á því." Japan er að mörgu leyti óheðfbundið handboltalið sem Ísland fær ekki oft tækifæri til þess að mæta. Guðmundur segir að það sé því meiri undirbúningur fyrir slíkan leik en oft áður. Gott að fá aukadag í undirbúningÓlafur Stefánsson sat í áhorfendastúkunni gegn Brasilíu. Finnur Jóhannsson fyrrum liðsfélagi Ólafs hjá Val er til hægri við Ólaf. Mynd/Valli„Ég er þess vegna mjög feginn að fá aukadag í undirbúning. Fyrir utan myndbandsfundi munum við taka æfingu í einn og hálfan tíma. Þar munum við útfæra okkar leik gegn þeim. Við þurfum að æfa okkur gegn óhefbundinni vörn og það eru bara ekki margir leikir á ári þar sem við mætum svona varnarleik," segir Guðmundur. Íslenska landsliðinu hefur oft gengið illa gegn sterkum Asíuþjóðum og Guðmundur var sjálfur í landsliðinu árið 1986 er Suður-Kórea valtaði yfir íslenska liðið og íslenska liðið vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið í þeim leik. Suður-Kórea lagði Ísland síðan af velli á Ólympíuleikunum í Peking og var það eini tapleikur liðsins þar fyrir utan úrslitaleikinn. Japan er að mörgu leyti sambærilegt lið og Guðmundur tekur andstæðinginn mjög alvarlega. „Við erum fullmeðvitaðir um hversu strembið þetta verkefni er og höfum reynt að læra af fyrri leikjum. Undirbúningurinn verður eins góður og mögulegt er og ég vona svo innilega að við mætum til leiks með réttu svörin," sagði Guðmundur en hversu bjartsýnn er hann á að Ólafur Stefánsson spili leikinn en Ólafur glímir við hnémeiðsli eins og alþjóð ætti að vera kunnugt um. „Staðan á Ólafi er tiltölulega góð og við erum nokkuð bjartsýnir. Hann mun taka æfingu í dag [í gær] með okkur og svo sjáum við til hvernig hann verður. Þetta er allt á réttri leið og ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn hvað hann varðar."
Mest lesið „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira