Guðjón Valur: Finnur að ballið er að byrja Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. janúar 2011 10:45
Ísland hefur leik á HM í Svíþjóð í dag eftir stuttan undirbúning hjá íslenska landsliðinu. Ísland mætir Ungverjalandi klukkan 16.00 í dag. „Maður finnur að ballið er að byrja. Það er gaman að þessu," sagði Guðjón Valur í samtali við Hörð Magnússon sem er staddur í Linköping í Svíþjóð. Íslenska liðið æfði í gær í síðasta sinn fyrir leikinn í dag. „Þetta er búið að ganga ágætlega en hefur verið aðeins rólegra hjá okkur síðustu tvo dagana. Við höfum verið að fara yfir taktík Ungverjanna og hvernig við ætlum að bregðast við henni," sagði hann. „Auðvitað hefði maður viljað fá lengri undirbúning en þetta er þó ekkert sem hefur slæm áhrif á okkur. Það eru öll lið sem sitja við sama borð." „Reyndar fóru deildirnar í Króatíu og á Spáni í frí þann 20. desember og þá byrjuðu leikmenn þar strax að æfa með sínum landsliðum. Við gátum ekki leyft okkur það þar sem við spilum flestir erlendis." Hann segir að upplifun sín nú sé öðruvísi en oft áður. „Hún er öðruvísi að því leyti að maður veit að hverju maður er að ganga. Undanfarin 2-3 ár hefur landsliðið verið að þróa sinn leik mikið og það hefur verið gaman og gefandi að fá að taka þátt í því." „Handboltinn er samt eins sama hvar hann er spilaður. En heimsmeistarkeppnin er sérstök, einkum þegar maður er í góðu liði sem á góðum degi getur unnið alla en tapað fyrir flestum á slæmum degi. Þá verður þetta enn meira spennandi þó svo að við vitum að þetta verði mjög erfitt enda margir leikir á fáum dögum." Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira