Rakel hefur verið að hjálpa til á öllum æfingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2011 06:30 Rakel Dögg Bragadóttir. Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið varð fyrir miklu áfalli á dögunum þegar landsliðsfyrirliðinn Rakel Dögg Bragadóttir sleit krossband aðeins nokkrum vikum fyrir HM í Brasilíu. Þetta var ekki síst áfall fyrir Rakel sjálfa en hún hefur engu að síður tekið þátt í undirbúningi liðsins fyrir HM og hefur mætt á allar æfingar. Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari og Hrafnhildur Skúladóttir, sem tekur við fyrirliðabandinu af henni, töluðu bæði um framlag Rakelar á æfingum liðsins á blaðamannafundi liðsins í gær. „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það hvort Rakel fari með til Brasilíu. Hún hefur verið með á öllum æfingunum að fylgjast með þessu hjá okkur. Hún hefur mikla reynslu og hefur fín áhrif á leikmenn. Rakel er mjög sterkur karakter og sterkur persónuleiki og það er kannski ástæðan fyrir því að hún hefur verið fyrirliði landsliðsins í þetta langan tíma þrátt fyrir ungan aldur," segir Ágúst. Hrafnhildur er nú tekin við fyrirliðabandinu. „Þetta breytir ekki miklu fyrir mig. Ég var varafyrirliði með Rakel og var fyrirliði landsliðsins áður en ég átti yngri dóttur mína. Ég var því fyrirliði landsliðsins fyrir fjórum árum og þetta er ekki nýtt hlutverk fyrir mér. Ég er líka fyrirliði hjá Val og líður bara ágætlega í þessari stöðu. Ég hefði klárlega viljað frekar hafa Rakel með en að vera sjálf með bandið," segir Hrafnhildur en Hanna Guðrún Stefánsdóttir verður varafyrirliði. „Það er búið að ganga rosalega vel á æfingunum. Rakel hefur hjálpað okkur og er að benda okkur á hluti. Hún er með rosalegt auga fyrir spili og er að vissu leyti aukaþjálfari. Ég veit ekki hvort hún getur farið með en hún er með á öllum æfingum núna og er að hjálpa til," segir Hrafnhildur.
Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Allegri og allir stjórnendur AC Milan reknir Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Enski boltinn Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Fleiri fréttir Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sjá meira