Guðmundur Reynir á leið í Harvard Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. nóvember 2011 07:00 Guðmundur er ekki bara góður í fótbolta heldur er hann einnig afburðanámsmaður og lipur tónlistarmaður.fréttablaðið/stefán
Einn besti leikmaður Íslandsmótsins síðasta sumar, KR-ingurinn Guðmundur Reynir Gunnarsson, er að öllum líkindum á leið til Bandaríkjanna eftir áramót þar sem hann hefur komist inn í skiptinám í hinum heimsfræga Harvard-háskóla. „Þetta er alveg gríðarlega spennandi tækifæri fyrir mig og ég er ánægður með að hafa komist inn,“ segir Guðmundur Reynir, en hann fer utan í janúar og kemur ekki aftur fyrr en í maí. Hann mun því missa af undirbúningstímabilinu með KR og koma til landsins þegar mótið er að byrja. Hann segir það ekki vera vandamál af hálfu KR að hann fái að fara. „Ég setti það í samninginn minn að ég gæti farið ef slíkt tækifæri kæmi upp. Það eru því engin leiðindi eða vandræði með þessa tilhögun,“ segir Guðmundur, sem er ekki bara öflugur í bakverðinum heldur einnig í náminu, en hann var eitt sinn í landsliðinu í stærðfræði. Hann mun læra hagfræði þann tíma sem hann verður í Harvard. „Ég mun síðan reyna að spila og halda mér í formi úti svo ég verði í þokkalegu standi fyrir KR þegar ég kem heim.“ Aðeins eitt getur komið í veg fyrir að Guðmundur fari ekki í Harvard, en það er ef hann fær freistandi tilboð frá erlendu félagi. „Atvinnumennskan er það eina sem getur stöðvað mig. Hlutirnir varðandi atvinnumennsku verða þó að gerast hratt, fyrir lok vikunnar,“ segir bakvörðurinn, en er það í kortunum að hann komist í atvinnumennsku? „Það eru viðræður við félag í Skandinavíu en ekki miklar líkur á að eitthvað verði úr því.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira