Nauðsynlegt að efla neyðarsjóð ESB 6. október 2011 11:00 Meðan Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ráðamenn Evrópusambandsins spá í lausnir mótmæla Grikkir harðlega niðurskurði heima fyrir. Mynd/AFP
Antonio Borges, yfirmaður Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir nauðsynlegt að neyðarsjóður ESB verði efldur til muna og honum verði heimilað að leita fleiri úrræða en til þessa. Hann dró hins vegar til baka yfirlýsingar sínar, frá því fyrr í gær, um að AGS geti gripið inn í á verðbréfamörkuðum til að koma í veg fyrir að stór hagkerfi á borð við Ítalíu og Spán riði til falls í kreppunni. „Við höfum yfir margvíslegum úrræðum að ráða sem hægt væri að grípa til í þeim tilgangi að endurvekja trú á þessi ríki,“ sagði Borges á ráðstefnu í Brussel í gær, en lagði mikla áherslu á að ESB verði nú að grípa til ráða sem duga. Sjóðurinn hefur til þessa lagt nærri 80 milljarða evra, eða nærri 13.000 milljarða króna, fram til björgunaraðgerða á evrusvæðinu, en það er nærri þriðjungur þess heildarfjármagns sem notað er til aðstoðar Grikklandi, Írlandi og Portúgal. Sjóðurinn hefur hins vegar ekki blandað sér í viðskipti á mörkuðum, þótt bæði hafi Seðlabanki Evrópusambandsins gert það undanfarið og einnig muni neyðarsjóður ESB grípa til slíkra aðgerða á næstu mánuðum. Sívaxandi ótti við greiðsluþrot Grikklands með keðjuverkunum til annarra evruríkja, jafnvel Ítalíu og Spánar, hefur grafið mjög undan tiltrú á evrunni. „Í þessari stöðu er ekki hægt að útiloka möguleikann á því að efnahagslífið taki stefnuna niður á við, og að önnur kreppa geti orðið,“ sagði Borges. Auk þess gaf Olli Rehn, efnahagsmálastjóri framkvæmdastjórnar ESB, í skyn í viðtali við Financial Times í gær að endurfjármögnun banka sé nú í skoðun á vettvangi Evrópusambandsins. Angela Merkel Þýskalandskanslari tók undir þetta, en hún hefur til þessa staðið hart á móti því að fé verði lagt úr ríkissjóðum Evrópusambandsins til að styrkja bankana. Allt þetta varð til þess að í gær urðu nokkrar verðhækkanir á mörkuðum, sem höfðu verið í niðursveiflu eftir fréttir dagsins á undan þegar fjármálaráðherrar ESB frestuðu ákvörðunum um frekari aðstoð til Grikklands eftir að Grikkir játuðu að þeir myndu ekki ná því markmiði, að koma fjárlagahalla landsins niður í 7,5 prósent á þessu ári. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira