Bjarni mun stýra Stjörnunni áfram Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. október 2011 07:00 Bjarni er á stöðugri uppleið með Stjörnuna og mun verða áfram þjálfari hjá félaginu.fréttablaðið/daníel „
Bjarni er samningsbundinn Stjörnunni og það er gagnkvæmur vilji af beggja hálfu að hann verði áfram. Það er því nokkuð ljóst að hann verður áfram þjálfari liðsins,“ segir Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Stjarnan kom af öllum liðum mest á óvart í sumar og náði sínum besta árangri í efstu deild. „Það er svolítið önnur staða hjá okkur núna. Við erum búnir að festa okkur í sessi í efstu deild og farnir að klóra i toppliðin. Auðvitað viljum við blanda okkur í slaginn næsta sumar. Við erum að fara yfir samningamál leikmanna núna og svo munum við huga að styrkingu,“ segir Almar en Daníel Laxdal hefur þegar framlengt við félagið og Stjarnan vonast til þess að festa aðra lykilmenn til lengri tíma. Danirnir Jesper Jensen og Nikolaj Pedersen verða líklega báðir áfram hjá félaginu að sögn Almars. „Til þess að geta tekið næsta skref þá þurfum við að styrkja okkur. Það er alveg ljóst. Við verðum engu að síður að vera skynsamir í okkar aðgerðum. Ég geri ráð fyrir að við munum reyna fyrir okkur fyrst á markaðnum hér heima áður en við skoðum erlenda leikmenn,“ segir Almar en það verður líklega auðveldara fyrir Stjörnuna að laða til sín erlenda leikmenn núna. Bæði er liðið búið að sanna sig sem eitt besta lið landsins og svo verður komið nýtt og betra gervigras á völlinn. Grasið sem lagt var á völlinn árið 2004 er úr sér gengið fyrir nokkru en grasið sem spilað verður á næsta sumar allt annað og betra.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu KR fær þýskan varnarmann Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga „Dóri verður að hætta þessu væli“ „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Hallgrímur: Ef þú slakar á 1-3% er þetta fljótt að breytast Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Davíð Smári: Ánægður með orkustigið Uppgjörið: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild McLagan framlengir við Framara Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Sjá meira