Sigmar Ingi: Er með jákvætt viðhorf Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2011 06:00 Sigmar Ingi Sigurðarson
Sigmar Ingi Sigurðarson er leikmaður 19. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann sýndi marga frábæra takta í marki Breiðabliks er liðið gerði 1-1 jafntefli við Keflavík suður með sjó í fyrrakvöld. „Við ætluðum að stimpla okkur endanlega út úr botnbaráttunni með þessum leik," sagði Sigmar Ingi við Fréttablaðið í gær. „En þetta var opinn leikur þar sem sigurinn gat dottið með báðum liðum." Breiðablik er núverandi Íslandsmeistari og því einkennilegt að liðið skuli vera að daðra við botnbaráttu fremur en titilslaginn. „Við vorum með skýr markmið fyrir tímabilið um að sækja titilinn upp á nýtt. Það hefur einfaldlega engan veginn gengið eftir," sagði Sigmar Ingi. „Við komumst í raun aldrei af stað eða á skrið með því að vinna nokkra leiki í röð." Sumarið hefur þó verið ágætt fyrir Sigmar Inga sem hefur fengið mikið að spila og haldið Ingvari Þór Kale, sem á nokkra landsleiki að baki, úr liðinu í síðustu leikjum. „Ég spilaði nokkra leiki í upphafi móts sem gekk ágætlega. Svo þegar ég fékk aftur tækifærið hef ég reynt að nýta það eins vel og ég get. Mér finnst góður stígandi í mínum leik." Sigmar er 28 ára gamall uppalinn Bliki en hefur aldrei spilað meira með liðinu en nú í sumar. Hann á einnig nokkur ár að baki með ÍH og Hvöt í 2. og 3. deild en kom svo aftur til Breiðabliks fyrir sumarið 2009. Þar til í sumar voru tækifærin af skornum skammti. „Ég hef alltaf verið með jákvætt viðhorf og sætt mig við mína stöðu. Ég hef ekki mikið getað sagt síðustu ár enda hefur Ingvar spilað mjög vel, þó svo að hann hafi ekki alveg fundið sig í sumar. Ég hef bara haldið áfram, lagt hart að mér og reynt að bæta mig."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira