FH-ingar góðir bæði manni fleiri og manni færri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2011 15:30 Pétur Viðarsson hefur fengið tvö rauð spjöld á stuttum tíma. Mynd/Daníel
Rauðu spjöldin hafa svo sannarlega farið á loft í leikjum FH-inga í Pepsi-deild karla í sumar en þau eru orðin alls sjö í fimmtán leikjum. FH-ingar hafa fengið fjögur rauð sjálfir og mótherjar þeirra hafa þrisvar sinnum verið sendir snemma í sturtu. Nú er svo komið að það hefur vantað leikmann í annað liðið í leikjum FH í samtals 254 mínútur í sumar. FH-ingar kunna líka það liða best að spila manni fleiri og manni færri ef marka má tölfræði liðsins við slíkar aðstæður í sumar. FH-ingar eru með markatöluna 5-2 þær 152 mínútur sem þeir hafa spilað ellefu á móti tíu og eru líka í plús þegar þeir hafa misst mann af velli. Pétur Viðarsson hefur fengið tvö rauð spjöld í síðustu fjórum leikjum FH en FH-liðið hefur unnið þá báða, fyrst 3-2 sigur á Val og svo 3-1 sigur á Víkingum. Markatala FH-liðsins manni færri í þessum tveimur leikjum er 3-0. FH-ingar eru reyndar í 2. sæti yfir bestu markatölu liða sem spila tíu á móti ellefu en Stjörnumenn eru þar efstir á blaði með markatöluna 3-1. Nýliðar Þórs og Víkings reka hins vegar lestina þegar kemur að því að nýta sér liðsmuninn. Þórsarar hafa reyndar bara lent einu sinni í slíkri aðstöðu og fengu þá á sig þrjú mörk á móti Stjörnunni. Víkingar hafa aftur á móti þrisvar sinnum tapað leik í Pepsi-deildinni í sumar þar sem liðið hefur verið manni fleiri í heilan hálfleik eða lengur. Víkingar hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum undir þessum kringumstæðum (á móti KR 2-3 og FH 1-3) og þeir lágu einnig á móti Val í júní (1-2) þrátt fyrir að vera ellefu á móti tíu í meira en klukkutíma. Víkingar hafa alls verið manni fleiri í 174 mínútur í sumar en markatala þeirra á þessum tíma er 2-5 mótherjum þeirra í hag. Hér fyrir neðan má sjá markatölu liðanna í deildinni þegar þau spila ellefu á móti tíu eða tíu á móti ellefu.Ellefu á móti tíu í sumar FH +3 (5-2, 152 mín.) Breiðablik +3 (3-0, 95) KR +2 (3-1, 99) Grindavík +2 (2-0, 58) Keflavík +1 (1-0, 3) Fram +1 (1-0, 12) Fylkir 0 (0-0, 2) Valur -3 (0-3, 78) Þór Ak. -3 (0-3, 43) Víkingur -3 (2-5, 174) ÍBV ekkert rautt Stjarnan ekkert rauttTíu á móti ellefu í sumar Stjarnan +2 (3-1, 75 mín.) FH +1 (3-2, 102) KR +1 (2-1, 57) Valur +1 (2-1, 64) Þór 0 (2-2, 45) Víkingur 0 (0-0, 1) ÍBV -1 (1-2, 103) Keflavík -1 (0-1, 84) Fylkir -1 (0-1, 26) Grindavík -2 (0-2, 69) Breiðablik -3 (1-4, 94) Fram ekkert rautt
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira