Innlent

Vonsviknir farþegar fá nýja flugmiða, 400 evrur og út að borða

Farþegi frá París fundaði með Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express, og er ánægður með tilboð um bætur vegna seinkunar og annarra óþæginda.
Farþegi frá París fundaði með Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express, og er ánægður með tilboð um bætur vegna seinkunar og annarra óþæginda. Mynd/GVA
Farþegar í miklu hörmungarflugi Iceland Express frá París um liðna helgi fá fébætur og nýtt flug með félaginu. „Þeir báðust innilega afsökunar og buðu bætur handa öllum farþegum og við erum bara sátt við það,“ segir Óli Þór Barðdal, einn farþeganna, en átti í gær fund með Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express.

Eins og komið hefur fram tafðist brottför vélarinnar frá París í um einn og hálfan sólarhring. Í stað þess að fara í loftið klukkan 14.20 á föstudegi var flugtak ekki fyrr en að ganga tvö aðfaranótt sunnudags. Í millitíðinni þurftu sumir farþeganna að sætta sig við að gista með ókunnugu fólki í hótelherbergjum. Auk þessa alls gagnrýndu farþegar skort á upplýsingum og matarleysi um borð í vélinni þegar loks var lagt af stað frá París.

Óli Þór og eiginkona hans áttu í gær fund með Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express. Óli Þór segist hafa lýst atburðarásinni fyrir Matthíasi sem fyrir sitt leyti hafi skýrt hvernig málið horfði við fyrirtækinu og hvað olli því hversu hörmulega til tókst.

„Ég sagði þeim að þetta hefði verið ömurlegt og erfitt og þeir fóru yfir ferlið frá sínum bæjardyrum,“ útskýrir Óli Þór sem kveðst hafa lesið þannig í fulltrúa Iceland Express á fundinum að félagið hafi í raun ekki ráðið við það sem úrskeiðis fór. Starfsmennirnir hafi verið virkilega leiðir yfir málinu.

„Við fáum 400 evra skaðabætur í peningum, eina flugferð að eigin vali og kannski út að borða,“ segir Óli Þór um niðurstöðu fundarins. „Við höfum tvö ár til að ákveða okkur,“ svarar hann spurður hvort hann sé fús til þess eftir martröðina í París að nýta sér boðið um nýtt ferðalag með Iceland Express.

Hvorki náðist í Matthías Imsland né Kristínu Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Iceland Express, í gær. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×