Segir Kaupþingsmenn hafa teiknað upp "Project Polo“ 15. júní 2011 08:00 Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekki nokkur tök á að greiða þrotabúi Baugs fimmtán milljarða, að því er segir í greinargerð hans. Skrifstofu fyrirtækisins á Túngötu var lokað í byrjun árs 2009.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að forsvarsmenn Kaupþings hafi teiknað upp viðskiptafléttuna sem fól í sér að Baugur keypti hlutabréf í sjálfum sér fyrir fimmtán milljarða af stjórnendum félagsins. Þetta kemur fram í greinargerð hans í skaðabótamáli sem skiptastjóri Baugs hefur höfðað vegna milljarðanna fimmtán. Fléttan gekk undir nafninu Project Polo og var liður í stærri endurskipulagningu Baugs, sem kölluð var Project Fox. „Frumkvæðið kom frá stjórnendum Kaupþings og var kynnt af þáverandi forstjóra bankans, Hreiðari Má Sigurðssyni," segir í greinargerð Jóns Ásgeirs, sem er skrifuð af lögmanni hans, Gísla Guðna Hall. Fléttan gekk út á að Kaupþing lánaði félaginu 1998 ehf. 30 milljarða til að kaupa Haga af Baugi á miklu yfirverði, að sögn Jóns Ásgeirs með því skilyrði að fimmtán milljarðar af söluverðmætinu yrðu nýttir til að kaupa bréf í Baugi af félögum stjórnarmannanna, sem aftur voru móðurfélög 1998 ehf. Hið háa kaupverð hafi byggst á því eðli samninganna. Að því er segir í greinargerðinni fluttust með þessu móti fimmtán milljarða skuldbindingar af Baugi og á félög stjórnarmannanna. Þetta hafi verið nauðsynleg björgunaraðgerð til að Kaupþing myndi ekki gjaldfella lán á Baug. Enn fremur hafi eingöngu verið um skuldatilfærslur að ræða en ekkert reiðufé hafi skipt um hendur. Með þeim rökstuðningi er fullyrt í greinargerð Jóns Ásgeirs að skaðabótamálið sé ekki reist á neinum grunni. Baugur hafi engu fé tapað og eigendur félaganna ekkert grætt á viðskiptunum. Þvert á móti hafi Baugur hagnast og Jón Ásgeir og hans fólk borið af þeim tjón. Í greinargerðinni segjast Jón Ásgeir og lögmaður hans ekki gera athugasemd við það að honum sé einum stefnt í málinu, þótt þeir telji að fyrir þeirri ákvörðun séu í raun engin rök, enda beri hann engu meiri ábyrgð á málinu en aðrir stjórnarmenn sem allir hafi samþykkt gerninginn. Enn fremur hafi ákvörðunin verið borin undir hluthafafund og samþykkt þar án mótmæla. Skiptastjóri hefur þegar höfðað riftunarmál vegna sömu ráðstafana á hendur félögunum sem bréfin voru keypt af og krefst af þeim fimmtán milljarða. Þetta er gagnrýnt í greinargerð Jóns Ásgeirs og bent á að hafi einhver verðmæti runnið til félaganna sé skiptastjóranum í lófa lagið að sækja þau þangað með riftun. Hins vegar sé engum slíkum verðmætum til að dreifa. Enn fremur er bent á í greinargerðinni að ef bæði málin næðu fram að ganga, og fimmtán milljarðar fengjust bæði frá félögunum fimm og úr skaðabótamálinu gegn Jóni Ásgeiri, stæði þrotabúið uppi með 30 milljarða þrátt fyrir að skiptastjórinn haldi því fram að tjónið hafi aðeins verið 15 milljarðar. Ef marka má greinargerðina kemur þó tæpast til þess, enda segir þar að Jón Ásgeir hafi „ekki nokkur tök á að greiða umkrafða fjárhæð" enda hafi eignir félaga í hans eigu nú brunnið upp. „Málssókn þessi er óvenjuleg og ómakleg," segir enn fremur, enda hafi Gaumur stutt við Baug alla tíð. Markmið Gaums og eiganda hans geti því ekki hafa verið að skaða Baug.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira