Ingimundur: Norðmenn eru hrokagikkir Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar 21. janúar 2011 08:00
Það var ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með varnaruxanum Ingimundi Ingimundarsyni gegn Noregi í gær. Hann var í stanslausum slagsmálum við norsku leikmennina allan leikinn og virtist skemmta sér konunglega. „Þetta var skemmtilegt og sérstaklega þar sem þetta eru Norðmenn. Ég er líklega vinsælasti maðurinn í Noregi núna - eða ekki," sagði Ingimundur og hló við. „Það mótiveraði mig aukalega að spila gegn Noregi. Þekki aðeins til þeirra og þeir eru hrokagikkir inn við beinið. Þetta var virkilega skemmtilegt og sérstaklega út af úrslitunum." Enn eina ferðina fór Ingimundur á kostum í íslensku vörninni en það hefur verið hreinn unaður að fylgjast með frammistöðu hans og Sverre hér í Svíþjóð. „Mér fannst vörnin vera þétt svona 80-90 prósent af leiktímanum. Við ætluðum ekki að breyta neinu í hálfleik og vissum að við myndum hrista þá af okkur á endanum," sagði Ingimundur en hann slóst mjög grimmilega við Myrhol og Löke. Voru ófáar skeytasendingarnar á milli þeirra allan leikinn. „Ég tek ofan fyrir Löke. Hann er líklega eini karlmaðurinn í þessu landsliði. Er ekki vælandi og tuðandi allan helvítis leikinn. Hann spilar eins langt og hann kemst og virðir að andstæðingurinn gerir það líka. Það er meira en margir aðrir í hans liði." Þessi Noregsleikur gleymist seint og það er ótrúlegt að fylgjast með þessu stórkostlega íslenska liði þegar það dettur í gírinn eins og í gær. „Þetta var sigur liðsheildarinnar og gaman að sjá Bjögga í markinu. Norðmennirnir urðu bara hræddir við hann. Hornamaðurinn þorði ekki einu sinni að skjóta á Bjögga, setti boltann frekar í markstangirnar. Hann varði ótrúlega bolta. Þetta var virkilega sætt. Það er ekki hægt að neita því."
Mest lesið „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Íslenski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti „Dómur af himnum ofan“ Íslenski boltinn Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Sjá meira