Við styðjum strákana okkar Pálmi Guðmundsson skrifar 6. janúar 2011 06:00 Íslenska handboltalandsliðið mun leika sinn fyrsta leik á HM í handbolta annan föstudag í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá mun hefjast sannkölluð handboltaveisla sem stendur yfir í tvær vikur. Íslenskir handboltaunnendur geta hugsað sér gott til glóðarinnar því óhætt er að fullyrða að aldrei fyrr hafa stórmótum í handbolta verið gerð betri skil í íslensku sjónvarpi. Aldrei áður hafa jafn margir leikir verið sýndir í beinni útsendingu. Þorsteinn J. mun ásamt íþróttafréttamönnum okkar og hópi gesta gera mótinu góð skil daglega. Áskrifendum stendur til boða að sjá heilt heimsmeistaramót í handbolta fyrir verð sem samsvarar tæplega einum miða á einn leik á HM í Svíþjóð. Víða erlendis er ekki hægt að kaupa áskrift nema til 12 mánaða í einu. Hér á landi nýtur öll fjölskyldan þess að sjá leiki Íslands og annara stórþjóða á mótinu í beinni útsendingu heima í stofu með einni mánaðaráskrift. Þar fyrir utan sýnir Stöð 2 Sport í janúar frá leikjum í ensku bikarkeppninni, efstu deild spænska boltans, golfmótum og NBA í körfubolta, svo fátt eitt sé nefnt. Stöð 2 Sport mun sýna tvo af fimm leikjum Íslands í undanriðli í opinni dagskrá. Komist landsliðið í milliriðil verður einn leikur af þremur í opinni dagskrá og úrslitaleikurinn sömuleiðis, fari svo að liðið leiki til úrslita. Allt ítarefni um mótið verður sent út í opinni dagskrá. Til samanburðar verður HM í handbolta í heild sinni í læstri dagskrá á Norðurlöndunum, í Þýskalandi og víðar. Vert er að taka fram að það var Alþjóða handknattleikssambandið sem seldi sjónvarpsréttinn að HM í handbolta án skilyrða. Má ætla að þessi réttur sé dýrmætasta eign handboltans á heimsvísu og lykilatriði í fjármögnun sambandsins og þar með handknattleiksambanda viðkomandi landa sem síður en svo standa traustum fótum. Ef svo færi í framtíðinni að stjórnvöld skylduðu eigendur sjónvarpsréttar til að sýna frá mótum af þessu tagi í opinni dagskrá, ætla þau þá að bæta íþróttahreyfingunni upp lægri tekjur af sjónvarpsréttinum? Er ekki eðlilegra að þeir sem hafa áhuga á sportinu greiði fyrir það hóflegt gjald, frekar en að þeir sem ekki hafa áhuga séu skattlagðir til að kaupa sýningarrétt að slíku efni? Er ekki nóg annað við skattpeningana að gera? Stöð 2 Sport mun á komandi heimsmeistaramóti styðja við tekjuöflun HSÍ og hvetja almenning og fyrirtæki í landinu í því mikilvæga verkefni. Handknattleiksambandið skortir fjármagn og stuðning og mun Stöð 2 Sport meðal annars láta hluta af andvirði af seldum áskriftum renna til HSÍ. Framundan er spennandi heimsmeistaramót og við styðjum strákana okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason Skoðun Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir Skoðun Rangárþing eystra í atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Meðvituð blekking um og upplýsingaóreiða um fullveldið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Að tala í mótsögn við sjálfan sig eða sitja hjá? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fjölbreytt ferðaþjónusta á víðsjárverðum tímum Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Finnbjörn A Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Skapandi greinar: lykill að nýsköpun Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Mataræði og hjartaheilsa Ellen Alma Tryggvadóttir skrifar Skoðun Hrein torg, fögur borg Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Rangárþing eystra í atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen skrifar Skoðun Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar Skoðun Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Frí tómstund fyrir þitt barn? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað? Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannarómur um gervigreind Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar