Skoðun

Við styðjum strákana okkar

Pálmi Guðmundsson skrifar

Íslenska handboltalandsliðið mun leika sinn fyrsta leik á HM í handbolta annan föstudag í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá mun hefjast sannkölluð handboltaveisla sem stendur yfir í tvær vikur. Íslenskir handboltaunnendur geta hugsað sér gott til glóðarinnar því óhætt er að fullyrða að aldrei fyrr hafa stórmótum í handbolta verið gerð betri skil í íslensku sjónvarpi. Aldrei áður hafa jafn margir leikir verið sýndir í beinni útsendingu. Þorsteinn J. mun ásamt íþróttafréttamönnum okkar og hópi gesta gera mótinu góð skil daglega.

Áskrifendum stendur til boða að sjá heilt heimsmeistaramót í handbolta fyrir verð sem samsvarar tæplega einum miða á einn leik á HM í Svíþjóð. Víða erlendis er ekki hægt að kaupa áskrift nema til 12 mánaða í einu. Hér á landi nýtur öll fjölskyldan þess að sjá leiki Íslands og annara stórþjóða á mótinu í beinni útsendingu heima í stofu með einni mánaðaráskrift. Þar fyrir utan sýnir Stöð 2 Sport í janúar frá leikjum í ensku bikarkeppninni, efstu deild spænska boltans, golfmótum og NBA í körfubolta, svo fátt eitt sé nefnt.

Stöð 2 Sport mun sýna tvo af fimm leikjum Íslands í undanriðli í opinni dagskrá. Komist landsliðið í milliriðil verður einn leikur af þremur í opinni dagskrá og úrslitaleikurinn sömuleiðis, fari svo að liðið leiki til úrslita. Allt ítarefni um mótið verður sent út í opinni dagskrá. Til samanburðar verður HM í handbolta í heild sinni í læstri dagskrá á Norðurlöndunum, í Þýskalandi og víðar.

Vert er að taka fram að það var Alþjóða handknattleikssambandið sem seldi sjónvarpsréttinn að HM í handbolta án skilyrða. Má ætla að þessi réttur sé dýrmætasta eign handboltans á heimsvísu og lykilatriði í fjármögnun sambandsins og þar með handknattleiksambanda viðkomandi landa sem síður en svo standa traustum fótum. Ef svo færi í framtíðinni að stjórnvöld skylduðu eigendur sjónvarpsréttar til að sýna frá mótum af þessu tagi í opinni dagskrá, ætla þau þá að bæta íþróttahreyfingunni upp lægri tekjur af sjónvarpsréttinum?

Er ekki eðlilegra að þeir sem hafa áhuga á sportinu greiði fyrir það hóflegt gjald, frekar en að þeir sem ekki hafa áhuga séu skattlagðir til að kaupa sýningarrétt að slíku efni? Er ekki nóg annað við skattpeningana að gera?

Stöð 2 Sport mun á komandi heimsmeistaramóti styðja við tekjuöflun HSÍ og hvetja almenning og fyrirtæki í landinu í því mikilvæga verkefni. Handknattleiksambandið skortir fjármagn og stuðning og mun Stöð 2 Sport meðal annars láta hluta af andvirði af seldum áskriftum renna til HSÍ. Framundan er spennandi heimsmeistaramót og við styðjum strákana okkar.




Skoðun

Sjá meira


×