Ógeðfelld pólitísk réttarhöld Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 19. nóvember 2011 12:30 Geir H. Haarde.
Réttarhöldin yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, eru ógeðfelld pólitísk réttarhöld og lýsir Sjálfstæðisflokkurinn yfir fullum stuðningi við hann í tillögu að stjórnmálaályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem kynntar voru fyrir hádegi. Fertugasti landsfundur Sjálfstæðisflokksins stendur yfir í Laugardalshöllinni. Fyrir hádegið kynnti Illugi Gunnnarsson, þingmaður flokksins, tillögu að stjórnmálaályktun landsfundarins og fóru síðan umræður um hana. Tillagan er byggð á drögum frá málefnanefndum flokksins. Þar lýsir flokkurinn meðal annars yfir stuðningi við Geir H. Haarde fyrrverandi formann flokksins og forsætisráðherra. ,, Í stað þess að leiða raunverulega endurreisn hefur ríkisstjórnin alið á úlfúð og klofningi í samfélaginu, meðal annars með því að skipuleggja pólitísk réttarhöld í skjóli Alþingis. Ákærur á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, eru ógeðfelld pólitísk réttarhöld, skipulögð af pólitískum andstæðingum Sjálfstæðisflokksins. Landsfundur lýsir yfir fullum stuðningi við Geir H. Haarde og bendir um leið á hversu alvarlegt fordæmi Alþingi hefur sett með ákvörðun sinni um pólitíska málshöfðun" sagði Illugi Gunnarsson. Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpar landsfundinn klukkan tvö í dag. Frambjóðendur til formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins flytja síðan ræður sínar en þau Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, og Hanna Birna Kristjánsdóttir sækjast bæði eftir því að gegna formennsku í flokknum. Sjálft formannskjörið fer hins vegar ekki fram fyrr en eftir hádegi á morgun.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira