Doktorar í fallbaráttu á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2011 06:30 Framarar fögnuðu með sínum hætti eftir sigurinn á Víkingi, fimmta sigur liðsins í sjö leikjum. Mynd/Daníel
Pepsi-deild karla lauk með dramatískri lokaumferð á laugardaginn en eftir hana var ljóst að Þórsarar fylgja Víkingum niður í 1. deildina, FH-ingar taka silfrið annað árið í röð og Eyjamenn sluppu með skrekkinn og héngu í Evrópusætinu þrátt fyrir tap á heimavelli. Sigurvegarar dagsins voru Fram og Grindavík, sem enn á ný sýndu kunnáttu sína og styrk í fallbaráttuslag í lokaumferð Íslandsmótsins. Fram vann 2-1 sigur á Víkingi en Grindvíkingar unnu óvæntan 2-0 sigur í Eyjum. Þór féll hins vegar eftir 2-1 tap í Keflavík, en Keflvíkingar héldu sæti sínu með þeim sigri. „Þetta var fyrsta færið mitt í sumar þannig að það var ágætt að skora úr þessu. Á meðan staðan er 0-0 er alltaf möguleiki að stela sigri," sagði Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindvíkinga, en hann var hetja liðsins þegar hann skoraði líklega mikilvægasta markið í lokaumferðinni þegar hann kom Grindavík í 1-0 á 80. mínútu í Eyjum. Þjálfarinn hélt haus allan tímannMaðurinn dagsins Óskar Pétursson stóð sig frábærlega í marki Grindavíkur í Eyjum og var líka vel fagnað í leikslok. Fréttablaðið/Óskar Pétur Friðriksson„Ég hef upplifað bæði að elta titilinn og vera á botninum. Það er meiri spenna á botninum. Þetta var frábært fyrir þjálfarann, sem hélt haus allan tímann," sagði Arnar Gunnlaugsson, sem tryggði Fram sigur á Víkingi. „Þetta var flott lið og svo bættust við tveir erlendir leikmenn sem gerðu gæfumuninn. Þetta var ekki eins og lið sem var að falla. Þetta var lið sem var að spila virkilega sannfærandi," sagði Arnar, sem skoraði tvö sigurmörk á lokasprettinum. Afrekin eru tvenns konar. Framarar rifu sig upp úr vonlítilli stöðu í byrjun ágúst í það að fá flest stig allra liða í deildinni í síðustu sjö umferðunum. Grindvíkingar fóru hins vegar á einn erfiðasta útivöllinn í deildinni í lokaumferðinni og unnu þar sigur þegar ekkert annað en þrjú stig gat á endanum bjargað þeim frá falli úr deildinni. ÍBV hafði ekki tapað við Hástein síðan í byrjun maí. „Staðan er auðvitað slæm. Mjög slæm. En það er ekkert hægt að hætta, menn verða að mæta áfram og spila fótboltaleiki," sagði súr og svekktur Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, í viðtali í Fréttablaðinu eftir að liðið hans glutraði niður forystu á síðustu mínútunni gegn Stjörnunni í 15. umferð 15. ágúst. Fram var þá með einn sigur og átta stig eftir fimmtán leiki og átta stigum frá öruggu sæti. Framarar hafa nú bjargað sér 9 sinnum í 10 tilraunum í lokaumferð efstu deildar karla en það má segja að þetta sé í þriðja sinn sem Framarar rísa upp frá dauðum. Það má bera þetta sumar við sumrin 2001 og 2003 þegar staðan var einnig mjög svört á botni deildarinnar í lok júlí. Lokaspretturinn þá var hins vegar glæsilegur eins og í ár þegar liðið fékk 16 stig út úr síðustu 7 leikjum sínum. Fram fékk 16 stig út úr síðustu 8 leikjunum 2001 og endaði á því að vinna 5-3 sigur á Keflavík í lokaumferðinni. Fram fékk 15 stig út úr síðustu 7 leikjum sínum sumarið 2003 og endaði á því að vinna 1-0 sigur á Þrótti í lokaumferðinni. Grindvíkingar, sem björguðu sér í sjöunda sinn í átta tilraunum, jöfnuðu met Framara með því að bjarga sér í fjórða sinn í lokaumferð eftir að hafa setið í fallsæti fyrir síðustu umferðina. Grindavík hafði einnig komið sér upp úr fallsæti í lokaumferðunum 1998, 1999 og 2005. Eiga fullt erindi í þessa deildÞórsarar sátu aðeins í fallsætinu í rúmar tólf mínútur í lokaumferðinni, í tvær mínútur í fyrri hálfleik áður en þeir náðu að minnka muninn í 2-1 í Keflavík og svo síðustu tíu mínúturnar eftir að Grindavíkurliðið komst yfir í Eyjum. „Við höfum verið í vandræðum á útivelli í sumar og á því varð engin breyting í dag. Það er sárt að falla því mér finnst strákarnir hafa sýnt í sumar að þeir eigi fullt erindi í þessa deild," sagði Páll Gíslason, þjálfari Þórs. Kannski voru það litlu breytingarnar sem höfðu bestu áhrifin. Víkingar ákváðu að reka þjálfara sinn Andra Marteinsson en það gekk ekkert hjá Bjarnólfi að koma Víkingsliðinu í gang fyrr en það var fallið úr deildinni. Fyrirliðabandið og Rikki DaðaMynd/DaníelHins vegar virtist það hafa mikil og góð áhrif á Framliðið að Þorvaldur Örlygsson fékk reynsluboltann og Framarann Ríkharð Daðason með á bekkinn og þá blómstraði Óskar Pétursson í Grindavíkurmarkinu eftir að hann fékk fyrirliðabandið á arminn eftir verslunarmannahelgina. Óskar fékk á sig 22 mörk í fyrstu 9 leikjunum en aðeins 11 mörk í 10 leikjum eftir að hann var gerður að fyrirliða. Óskar hefur átt marga frábæra leiki á lokakaflanum og hefur með því bjargað mörgum stigum; þar á meðal hélt hann Grindavík á floti fram eftir leik í Eyjum. Þá má ekki gleyma því að Páll Viðar Gíslason „fórnaði" einum leik fyrir ferð til Hollands og eftir það náði Þórsliðið aðeins í 4 stig af 21 mögulegu. Liðið tapaði líka sex síðustu útileikjum sínum og fékk aðeins eitt stig í níu leikjum utan Þórsvallarins eftir sigur á Fram á Laugardalsvellinum í byrjun maí.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Sjá meira