Keflavíkurkonur í bikaúrslitaleikinn eftir spennuleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2011 20:51 Bryndís Guðmundsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir. Mynd/Daníel
Keflavíkurkonur komust í bikarúrsltialeikinn þriðja árið í röð og í 19. sinn frá upphafi eftir þriggja stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, 72-69, í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Bryndís Guðmundsdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 22 stig og Birna Valagarðsdóttir bætti við 13 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum. Marina Caran lék sinn fyrsta leik með Keflavík og skoraði 11 af 13 stigum sínum í seinni hálfleiknum en Jacquline Adamshick var með 12 stig og tók 7 fráköst sem þykir ekki mikið á þeim bænum. Shayla Fields var atkvæðamest hjá Njarðvík með 22 stig, Dita Liepkalne bætti við 18 stigum og 13 fráköstum en Julia Demirer var með 10 stig og 11 fráköst. Ína María Einarsdóttir var stigahæst íslensku leikmanna liðsins með 9 stig. Keflavík byrjaði vetur, komst í 9-4, 12-6 og 15-10 en var síðan bara 15-14 yfir eftir fyrsta leikhluta eftir að Njarðvík skoraði fjögur síðustu stigin í leikhlutanum. Njarðvík skoraði 15 af fyrstu 19 stigum annars leikhlutans og komst tíu stigum yfir, 29-19, en Keflavíkurliðið svaraði með sjö stigum í röð og minnkaði muninn í 29-26. Njarðvík náði þá öðrum góðum kafla og var 39-30 yfir í hálfleik. Njarðvík komst ellefu stigum yfir í upphafi seinni háfleiks, 41-30, og var með tíu stiga forskot, 45-35, þegar tvær og hálf mínúta var búin af hálfleiknum. Þá vaknaði Keflavíkurliðið heldur betur af værum blundi, skoraði 15 stig í röð á fjórum mínútum og komst yfir í 50-45. Keflavíkurliðið komst mest átta stigum yfir, 55-47 en var síðan fjórum stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 58-54, eftir að Njarðvíkurliðið náði aðeins að minnka muninn aftur. Lokaleikhlutinn var spennandi þótt að Keflavíkurliðið hafi alltaf verið með forustuna. Shayla Fields minnkaði muninn í 72-69 og fékk síðan tækifæri til að jafna metin en þriggja stiga skot hennar geigaði.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira