Lars: Hann er alveg ískaldur, kannski er hann Íslendingur Smári Jökull Jónsson skrifar 17. janúar 2011 22:39 Lars Christiansen. Mynd/AFP
Lars Christiansen, hinn eldhressi fyrirliði danska landsliðsins í handknattleik, var að vonum ánægður eftir 35-27 sigur gegn Serbum á Heimsmeistaramótinu í handknattleik en leikurinn fór fram í Malmö í kvöld. Danir eru því með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og auk þess líklega búnir að tryggja að þeir taka að minnsta kosti tvö stig með sér áfram í milliriðilinn. „Sigurinn var mjög mikilvægur því hann snerist um það hvort liðið tæki með sér stig í milliriðilinn. Við vissum að Serbarnir væru með sterkt lið og að leikurinn yrði erfiður. Við náðum hinsvegar yfirhöndinni strax í upphafi og vorum mjög grimmir í vörninni. Við ætluðum okkur að hlaupa í 60 mínútur í leiknum og þeir áttu ekki til nægan kraft í það og réðu ekki við tempóið. Þetta leit kannski út fyrir að vera einfalt en við þurftum að hafa mikið fyrir þessum sigri," sagði Christiansen í samtali við Vísi. „Við erum með 16 mjög sterka leikmenn í okkar hópi og allir vilja sýna hvað í þeim býr. Okkar styrkleiki felst í því hvað hópurinn er breiður og við veikjumst ekki þó við skiptum mönnum út. Það eru margir erfiðir leikir framundan og nú þurfum við að taka næsta skref. Þetta er bara byrjunin hjá okkkur," bætti Christansen við. Rasmus Lauge.Mynd/AFP Danir urðu fyrir áfalli í gærmorgun þegar í ljós kom að einn af þeirra lykilmönnum, leikstjórnandinn Thomas Mogensen, yrði ekki meira með í mótinu vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Rúmenum í gær. „Það var auðvitað mikið áfall. Thomas hafði spilað mjög vel í mótinu til þessa og þetta var alveg hræðilegt fyrir hann og okkur. Nú kemur 19 ára strákur inn í liðið, sem gerði mark úr sínu fyrsta skoti á mótinu gegn Serbum. Hann er alveg ískaldur, kannski er hann Íslendingur?" sagði Christansen og hló. Hann átti þar við Rasmus Lauge sem skoraði í kvöld eftir að hafa einungis verið inni á vellinum í 10 sekúndur. Danir mæta Alsíringum á miðvikudag sem unnu Rúmena í dag og á fimmtudaginn er komið að stórleik riðilsins þegar danska liðið mætir því króatíska. „Við verðum að vinna leikinn gegn Alsír og ég tel að við munum gera það. Sá sem stendur uppi sem sigurvegari í leiknum á fimmtudag mun taka með sér fjögur stig í milliriðilinn og leikurinn því mjög mikilvægur. Við vitum að 9500 Danir hafa keypt miða á leikinn gegn Króatíu og það verður án efa frábær stemmning," sagði Christansen að lokum.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira