Umfjöllun: Steindautt í Grindavík Guðmundur Marinó Ingvarsson á Grindavíkurvelli skrifar 22. ágúst 2011 14:30 Grindvíkingurinn Páll Guðmundsson í leik með liðinu fyrr í sumar. Mynd/Hag
Grindvíkingar og Víkingar gerðu steindautt markalaust jafntefli í leik liðanna í 16. umferð Pepsi-deild karla í Grindavík í kvöld. Það var því ekkert mark skorað í báðum innbyrðisleikjum liðanna í sumar því liðin gerðu líka markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Víkinni. Hann bauð ekki upp á mörg færi eða mikla skemmtun leikurinn í bleytunni og rokinu í Grindavík í kvöld. Markalaust jafntefli niðurstaðan í leik Grindavíkur og Víkings í annað sinn í sumar og góð færi í lágmarki. Grindavík sótti undan sterkum vindinum í tíðindalitlum fyrri hálfleik þó Magnús Þormar hafi einu sinni varið mjög vel í marki Víkings og Magnús Páll sett boltann í hliðarnetið á marki Grindavíkur. Það gerðist ekki mikið fleira í seinni hálfleik fyrr en síðustu 20 mínúturnar. Magnús Björgvinsson fékk þá besta færi leiksins en missti boltann of langt frá sér þegar hann var kominn einn í gegn og Magnús Þormar sótti boltann auðveldlega. Víkingur sýndi lífsmark í lokin með mikilli baráttu og náði aðeins að pressa á Grindavík en gæði vantaði fram á við og pressan skilaði ekki færum. Markalaust jafntefli var því staðreynd, úrslit sem eru mun betri fyrir Grindavík en Víking því Grindavík heldur enn átta stiga forystu á Víking sem virðist ekki eiga mikla möguleika á að bjarga sér frá falli þó enn séu sex umferðir eftir. Grindavík hefði getað losað sig við falldrauginn með sigri en fjórði leikurinn í röð án taps er staðreynd og haldi liðið áfram á þeirri braut ná liðin í tveimur neðstu sætunum Grindvíkingum ekki að stigum.Grindavík-Víkingur 0-0 Grindavíkurvöllur. Áhorfendur: 693 Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 6Tölfræðin: Skot (á mark): 8-5 (5-1) Varið: Óskar 1 – Magnús 5 Hornspyrnur: 5-5 Aukaspyrnur fengnar: 23-13 Rangstöður: 3-0
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira