Ráðhús úti í bæ? Haukur Arnþórsson skrifar 18. nóvember 2011 06:00 Fyrir nokkru var vefurinn Betri Reykjavík opnaður. Honum er ætlað að vera vettvangur fyrir umræðu um borgarmálefni. Hann er rekinn af félaginu Íbúar í ákveðnu samstarfi við Reykjavíkurborg. Vefurinn gæti mætt brýnni þörf og fyrir fram mætti ætla að hann gæti orðið vinsæll ef vel tekst til. Ekki samræða stjórnvalda og almenningsEn því miður bendir margt til þess að fremur illa hafi tekist til með þetta verkefni, meðal annars sú staðreynd að það er of lítið tengt stjórnvaldsstofnunum, stjórnmálamönnum og embættismönnum. Engir aðrir en þeir geta aukið traust á stjórnmálunum og raungert gagnvirkt samráð við almenning á netinu. Hætt er við því að samtal almennings á vef úti í bæ hafi ekki eins jákvæð áhrif á stjórnmálin og þurft hefði. Málefni frá honum eru þó tekin á dagskrá sviðsstjórna hjá Reykjavíkurborg, en það virðist eina tenging vefjarins við Reykjavíkurborg. Forsendur samræðuvefja á netinu eru margar. Í þeim tilraunaverkefnum sem ESB hefur stutt og þekktust eru hefur jafnan verið miðað við að samráðsvefir styðji við fulltrúalýðræðið og auki traust og samvinnu milli íbúa og stjórnvalda og íbúa innbyrðis. Það er jafnan gert með aðferðum umræðulýðræðis (e. deliberative democracy). Í því skyni eru opinber gagnasöfn opnuð, stjórnvöld auðvelda almenningi að bera fram erindi, spurningar og svör til stjórnmála- og embættismanna eru vinsæl og síðast en ekki síst eru myndaðir samræðuvefir. Þar sem stjórnvöld sinna þessu verkefni illa hér á landi, þó með ákveðnum undantekningum á sveitarstjórnarstiginu, kemur það ekki alveg á óvart að fram komi vettvangur í grasrótinni. En spyrja má hvort rekstur vefjarins verði fremur til höfuðs hefðbundnum stjórnmálum eða hvort hann styðji þau? Skráning á stjórnmálaskoðunumSérstaklega hefur efnisleg hönnun Betri Reykjavíkur tekist illa og er þá átt við að kerfið framkvæmir netkosningu um málefni og innslög frá þátttakendum. Það er gert með tökkunum Styðja og Á móti fyrir málefni og Gagnlegt og Ekki gagnlegt fyrir innslög. Skráning sem þessi á stjórnmálaskoðunum almennings er sennilega bæði siðlaus og gæti varðað við lög. Hún opnar möguleika á því að mynda útlínumynd (e. personal profile) af pólitískum sjónarmiðum notenda og hana má nota og misnota í margháttuðu skyni. Þetta geta Íbúar notfært sér og raunar allir sem hafa til þess kunnáttu og væri eftir atvikum ekki óeðlilegt að stjórnmálaflokkarnir mynduðu forrit sem læsi kosningu einstaklinga á vefnum og sem skráði gögnin í gagnagrunna þeirra. Hér er mun lengra gengið en hægt er með Like í Facebook, en nýlega féll dómur í Þýskalandi um að ólöglegt væri að nota það vegna persónuverndarsjónarmiða. Fjöldi mannréttindasamtaka hefur fagnað dóminum. Skráningu á stjórnmálaskoðunum almennings má bera saman við skráningu á Facebook ef notendur eru þar líka, það eykur við hættuna því þessar persónuupplýsingar má samkeyra. Það virðist í alla staði eðlilegt að draga netkosningu vefjarins til baka. Ekki er þörf á því að efna til netkosninga á vefnum vegna þeirrar umræðu sem þar fer fram, markmið hennar nást án þess. Flestir og sennilega allir samráðsvefir í nágrannaríkjunum eru jafnan án þeirra. Umræðulýðræði og upplýstur skilningurEn fleira er eins og það á ekki að vera. Með notkun takkanna tekur almenningur afstöðu til mála sem eru nýkomin fram og jafnvel órædd á vefnum og brýtur það í bága við yfirlýstan tilgang samræðuvefja, sem er að styrkja umræðulýðræði. Það form lýðræðis er reynt að efla í nágrannaríkjum okkar með gagnvirkum vefjum stjórnvalda og almennings. Og hvaða önnur markmið en styrking umræðulýðræðis liggja til grundvallar samræðuvefjum yfirleitt? Halda má því fram að kosning sé ólýðræðisleg ef upplýstur skilningur er ekki fyrir hendi. Hann má ekki sniðganga með þessu móti. Þá hafa kosningar á netinu jafnan litla eða enga merkingu af mörgum ástæðum, til dæmis þeim að sjálfvalinn hópur kýs við óstýranlegar aðstæður. Ekki er hægt að fullyrða að vefurinn birti mynd af vilja borgarbúa. Kosningarnar eru því ekki málefnalegur grundvöllur til að gera upp á milli mála og opinbert vald getur ekki hagnýtt sér slíkt úrræði í því skyni. Hins vegar framkvæma þær ákveðið form meirihlutaræðis sem er einkennandi fyrir netið og getur lítill hópur komið fram sem meirihluti, sem er einkenni beins lýðræðis. Enda þótt nokkrir leiðandi aðilar í lýðræðisumræðu hér á landi gefi í skyn að netkosningar séu innan seilingar fer því fjarri að svo sé. Hins vegar opna kosningar á netinu fyrir möguleika á svikum af mörgu tagi. Hlutur ReykjavíkurborgarStjórnvöld hafa ríkar og margháttaðar skyldur í samskiptum við almenning. Þau þurfa óhjákvæmilega að sjá til þess að opinberar reglur séu framkvæmdar á vefjum sínum eða vefjum sem þau nota beint eða óbeint í starfsemi sinni. Mjög sérkennilegt er því að Reykjavíkurborg hafi látið leiða sig til samstarfs við Betri Reykjavík án nánari skoðunar á virkni vefjarins. Borgin hefði átt að leita eftir samþykki Persónuverndar fyrir gagnavinnslunni og hafna því að taka mál frá Betri Reykjavík á dagskrá í stjórnkerfi sínu eftir kosningu á netinu af því tagi sem þarna fer fram. NiðurlagHugsanlegt er að skipulegir hópar eigi eftir að misnota atkvæðagreiðslumöguleika vefsins og að minnihlutahópar komi málum sínum ekki fram. Ef slík dæmi verða staðfest mun það grafa undan trúverðugleika hans og gera aðkomu Reykjavíkurborgar að málinu klaufalega. Þá má jafnvel hugsa sér að almenningur vilji ekki láta skrá stjórnmálaskoðanir sínar nákvæmlega og að Íbúar gætu fengið á sig úrskurði eða dóma um það efni – og Reykjavíkurborg vegna ólögmætra forsendna um hvernig hún tekur mál frá almenningi á dagskrá. Því er ekki víst að vefurinn auki stjórnmálavirkni almennings eða verði langlífur í núverandi mynd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Arnþórsson Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar