Veit á gott fyrir Þjóðverja að tapa á Íslandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2011 07:00 Heiner Brand þjálfaði einnig þýska landsliðið árið 2002. Nordic Photos / Bongarts
Þó svo að Þýskaland hafi tapað báðum æfingaleikjunum sínum gegn Íslandi í Laugardalshöllinni um helgina þarf það ekki endilega að þýða að liðið sé í slæmum málum. Þvert á móti segir sagan að þá sé von á góðu hjá Þjóðverjum á HM í Svíþjóð sem hefst á fimmtudaginn. Þjóðverjar höfðu tvívegis komið hingað til lands skömmu fyrir stórmót og í bæði skiptin, rétt eins og nú, töpuðu þeir báðum leikjunum. En í bæði þessi skipti komust þeir í undanúrslit á næsta stórmóti. Í fyrra skiptið var það í janúar árið 1995. Þá vann Ísland báða leikina með litlum mun (22-20 í íþróttahúsi UBK og 22-21 í Laugardalshöllinni). Um vorið fór svo HM í handbolta fram hér á landi og komust Þjóðverjar í undanúrslit. Þeir enduðu þó í fjórða sæti eftir tap fyrir verðandi heimsmeisturum Frakka í undanúrslitum. Enn athyglisverðara er að rifja upp þegar liðin mættust árið 2002. Ísland hafði betur í tveimur leikjum í Laugardalshöllinni 12. og 13. janúar, skömmu áður en Evrópumeistaramótið, sem einmitt var haldið í Svíþjóð, hófst. Þá komust bæði Ísland og Þýskaland í undanúrslit. Þjóðverjar höfðu betur gegn Dönum og komust í úrslitaleikinn gegn Svíum. Sá var æsispennandi og réðst ekki fyrr en í framlengingu en að lokum voru það heimamenn sem höfðu betur og urðu Evrópumeistarar. Eins og frægt er máttu Íslendingar sætta sig við fjórða sæti mótsins. Ef bæði lið komast upp úr sínum riðlum í Svíþjóð nú mætast Ísland og Þýskaland í milliriðlakeppninni, rétt eins og þau gerðu árið 2002. Það sem meira er - Guðmundur Guðmundsson var landsliðsþjálfari Íslands og Heiner Brand landsliðsþjálfari Þýskalands, rétt eins og nú.
Mest lesið Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Fótbolti Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Fótbolti Ólympíumeistarinn þarf að fara í kynjapróf til að fá að keppa Sport Leiknir lætur þjálfarann fara Fótbolti „Þetta er alvöru pakki og alvöru djobb“ Körfubolti Sjáðu frábæra afgreiðslu Sveindísar Jane Fótbolti Fyrrum forseti Inter látinn og liðið mun leika með sorgarbönd Fótbolti Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Enski boltinn Dagskráin: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á kvöldið Sport Fleiri fréttir Stórleikur Janusar og fimm marka forskot ekki nóg í Íslendingaslag um titilinn Hannes og lærisveinar hans töpuðu fyrsta úrslitaleiknum Samstarf HSÍ og Rapyd heyrir sögunni til Melsungen tapaði toppslagnum Magdeburg á toppinn eftir enn einn stórleikinn hjá Ómari og Gísla „Er þreyttur núna, ég skal bara viðurkenna það“ Anton og Jónas dæma á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar Viktor Gísli og Wisla Plock með yfirhöndina í úrslitaeinvíginu Hannes fær Íslandsmeistara til Austurríkis Myndaveisla: Valskonur Íslandsmeistarar þriðja árið í röð „Erum búin að vera í fimm úrslitaleikjum“ „Þvílík vegferð sem þetta er búið að vera“ „Þær vinna þetta Íslandsmót sanngjarnt“ „Hefði ekki verið hægt að skrifa þennan endi“ Gerir ekki upp á milli Arons og Óla Stef: „Verður mikill söknuður af honum“ Uppgjörið: Valur - Haukar 30-25 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Alltaf markmiðið að verða Íslandsmeistari Goðsagnir senda Aroni kveðjur: „Einn besti leikmaður allra tíma“ „Stórmannlegt“ af Aroni sem hafi tekið rétta ákvörðun Aron Pálmarsson leggur skóna á hilluna í sumar Óðinn Þór skoraði ellefu og tryggði þriðja titilinn Átján mörk frá Ómari og Gísla í stórsigri Magdeburg Féll allur ketill í eld í seinni hálfleik Þorsteinn Leó með fimm í mikilvægum sigri Melsungen komst ekki í úrslitaleikinn Bætti á sig átta kílóum, vann tvöfalt og er á leið út Vildi ekki skipta um lið bara til þess eins að skipta um lið „Við þurfum hjálp frá Guði“ „Við erum með gríðarlega sterka liðsheild“ „Er til eitthvað sem heitir sjöundi gír?“ Sjá meira