Stærsta keiluhöll landsins opnuð í Grafarvogi í febrúar 23. október 2011 14:00 Rúnar Fjeldsted ásamt syni sínum Agnari í nýrri keiluhöll sem verður opnuð í Egilshöll í febrúar. Þarna verður sportbar, kaffihús, heilsubar og matsölustatður sem tekur 170 manns í sæti. Hátt í 240 þúsund manns fara í keilu á hverju ári.fréttablaðið/Stefán „
Auðvitað mun þetta hafa einhver áhrif á rekstur Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð, þannig er það bara með allt nýtt á Íslandi. En samkvæmt okkar útreikningum munu þau áhrif standa yfir í sex til átta mánuði og svo jafnast út,“ segir Rúnar Fjeldsted. Hann opnar nýja og glæsilega keiluhöll í Egilshöll í febrúar en rekur einnig Keiluhöllina í Öskjuhlíð. Að öllum líkindum verður um að ræða stærstu keiluhöll landsins, með sportbar, kaffihúsi, heilsubar og matsölustað sem tekur 170 manns í sæti. Alls verða 22 keilubrautir til taks og að sjálfsögðu verður boðið upp á diskókeilu eins og vinsælt hefur verið í Öskjuhlíðinni. Og þetta er bara fyrsti áfanginn. Ári seinna verður tekinn í notkun fullkominn golfhermir og fundarsalir, svo fátt eitt sé nefnt. Bandaríska fyrirtækið Dynamica Design var fengið til að hanna umhverfið. „Fyrirtækið hefur sérhæft sig í að hanna svona afþreyingarsvæði í stórum verslunarmiðstöðvum og íþróttahöllum,“ útskýrir Rúnar, en undirbúningur fyrir keiluhöllina hófst af fullum krafti í maí á þessu ári þegar skrifað var undir leigusamning við fasteignafélagið Regin. Að sögn Rúnars fara 240 þúsund manns í keilu í Öskjuhlíðinni á ári hverju en hann gerir sér vonir um að enn fleiri eigi eftir að sækja Keiluhöllina í Egilshöll. „Gegnumstreymið um húsið er þrjú þúsund manns á dag. Og svo er hún í stærsta neysluhverfinu; Grafarvogurinn, Grafarholtið, Árbær og Mosfellsbær. Og svo er þarna barnafólkið.“ Og Rúnar er handviss um að nýja keiluhöllin eigi eftir að verða bylting fyrir keiluíþróttina hér á landi. „Keilan er íþrótt sem hefur setið á hakanum hér á landi en þessi keiluhöll mun vonandi opna nýjar víddir Það eru 250 manns sem stunda hana af kappi en það hefur ekki verið pláss fyrir fleiri iðkendur.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Sjá meira