Sigurður: Þýðir ekkert að spila á meiddum leikmönnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2011 15:30 Það hefur verið hart tekið á Alexander Peterssyni. Mynd/Valli
Sigurður Bjarnason, einn sérfræðinga Vísis um HM í handbolta, er vongóður um íslenskan sigur í leiknum gegn Noregi í dag. Leikurinn hefst klukkan 18.10 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn er í síðustu umferð riðlakeppninnar en, eins og Sigurður bendir á, er hann í raun eins og sá fyrsti í milliriðlakeppninni. Bæði lið eru örugg áfram í milliriðil og hefur því leikurinn í kvöld áhrif á hversu mörg stig liðin fara með sér þangað. „Mér líst mjög vel á leikinn enda komnir nú út í fyrsta leik í milliriðli í raun. Við tökum þetta. Ég vona að við fáum jafnan og skemmtilegan leik eins og gegn Austurríki og að við þurfum að vera á tánum allan leikinnn. Ég veit samt ekki hvort leikurinn verði þannig." „Það verður lykilatriði að við höldum sama dampi í varnarleiknum okkar eins og við gerðum í seinni hálfleik gegn Austurríki. Þá eiga Norsaragreyin engan séns. Það er þó alltaf mikilvægt að markverðirnir haldi áfram að standa sig vel eins og þeir hafa gert."Mynd/ValliÓlafur Stefánsson og Alexander Petersson hafa báðir verið að glíma við meiðsli og bendir Sigurður á að það sé aldrei til góðs að treysta á meiddan leikmann. Báðir verða í hópnum í kvöld. „Ef þeirra staða er slæm breytir það auðvitað stöðu himintunglanna. Við erum háðir þeim báðum. Ef annar dettur út getur hinn komið enn en ef þeir eru báðir eins og hálfir menn þá er alveg eins gott að ná í annan leikmann til að spila þessa stöðu. Það hefur margoft sýnt sig að það er ekki gott að þurfa að treysta á meiddan leikmann." Ásgeir Örn Hallgrímsson getur einnig spilað stöðu hægri skyttu og Sigurður segir að það séu fleiri sem geti leyst hana. „Það væri þess vegna hægt að láta örvhentan leikmann spila þarna eða þá Snorra Stein og láta hann leysa inn á línu. Þórir er dæmi um leikmann sem hefur komið inn í liðið og slegið í gegn. Ásgeir Örn kann þetta allt saman og af hverju ekki að nota hann." „Svo er aldrei að vita hvað gerist ef leikmenn eins og Sigurbergur Sveinsson fær tækifærið. Ef hann er 100 prósent heill getur hann komið inn og byrjað að raða inn mörkunum. Heill leikmaður getur nefnilega gert kraftaverk. Meiddur leikmaður finnur fyrir verkjum og er að spara sig."Mynd/Valli„Svo vona ég líka að línan komi sterk inn hjá okkur og að Robbi [Róbert Gunnarsson] og Kári [Kristjánsson] verði saman með 8-10 mörk í kvöld. Það væri mjög öflugt." Norðmenn eru í erfiðri stöðu. Einu stigin sem þeir eiga möguleika á að taka með sér í milliriðlakeppnina eru stigin sem liðið getur fengið gegn Íslandi í kvöld. Gefur það norska liðinu aukinn kraft? „Austurríki var í sömu stöðu," segir Sigurður. „Það var að duga eða drepast fyrir þá. Enda stóðu þeir í okkur í fyrri hálfleik. En um leið og við náðum forystunni í seinni hálfleik koðnuðu þeir einfaldlega niður. Sjálfstraustið var okkar megin og leikurinn var búinn þegar um tíu mínútur voru eftir." „Svo eru Norðmennirnir með eitthvað helvítis væl í sínum fjölmiðlum. Þeir eru greinilega með sínar afsakanir á hreinu fyrir tapið. Á meðan erum við að undirbúa okkur fyrir sigur." „Mér finnst einnig að strákarnir eigi að reyna að slá eitt metið í miðbót og vinna fimm leiki í röð á HM."
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira