Kaplakrikinn á að vera vígi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. september 2011 08:00 Atli átti góðan leik gegn KR og er leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. Fréttablaðið/Daníel
FH-ingar urðu fyrstir til að sigra KR í Pepsi-deild karla í sumar þegar liðin mættust á Kaplakrikavelli um helgina. FH vann 2-1 sigur og skoraði Atli Guðnason fyrra mark Hafnfirðinga í leiknum en átti þess fyrir utan stóran þátt í öflugum sóknarleik FH. Hann er leikmaður 18. umferðarinnar að mati Fréttablaðsins. „Þetta var mjög góður sigur. Kannski helst til tæpur miðað við hvernig leikurinn þróaðist en þetta voru þrjú góð stig sem koma til með að hjálpa okkur mikið,“ segir Atli, en FH-ingar höfðu mikla yfirburði í leiknum þar til KR minnkaði muninn á 72. mínútu. „Við vorum klaufar að vera ekki búnir að skora fleiri mörk, sérstaklega í byrjun seinni hálfleiks þegar við sköpuðum okkur 3-4 mjög góð færi,“ segir Atli, en hann segir leikskipulag FH hafa gengið mjög vel fram að því. „KR er með fljóta sóknarmenn og við vörðumst aftar á vellinum en við gerum venjulega. Við reyndum að lokka þá til okkar og fá þá til að missa boltann á góðum stöðum. Það gaf okkur tækifæri til að sækja hratt á þá og það tókst í um 70 mínútur. Þá komust þeir í sókn og skoruðu mark sem sló okkur aðeins út af laginu. En sem betur fer erum við með góðan markvörð sem varði vel í lokin,“ segir Atli. FH er nú með 34 stig og er fimm stigum á eftir toppliði ÍBV. KR er með 38 stig en á leik til góða. Atli segir ómögulegt að spá í framhaldið. „ÍBV og KR eiga eftir að mætast innbyrðis og þangað til er mjög erfitt að meta stöðuna. Hvað okkur sjálfa varðar er ljóst að við getum ekki treyst á okkur sjálfa í titilbaráttunni og því er lítið annað í stöðunni en að ná í eins mörg stig og við getum og sjá hvað það færir okkur. Það sem mestu máli skiptir fyrir félagið í dag er að tryggja liðinu sæti í Evrópukeppninni og við tókum stórt skref í þá átt með þessum sigri,“ segir Atli, en FH er nú með fimm stiga forystu á næsta lið, Val, sem er í fjórða sætinu. Atli neitar því ekki að það hafi verið skemmtilegt að verða fyrsta liðið til að vinna KR í deild eða bikar í sumar en það sé þó ekki það sem mestu máli skipti. „FH hefur ekki tapað í Kaplakrika á tímabilinu, hvort sem er í deild, bikar eða Evrópukeppninni. Við viljum halda því þannig. Kaplakrikinn á að vera vígi og þangað á ekkert lið að geta komið og náð í þrjú stig,“ segir Atli, en FH hefur náð í 23 stig af 27 mögulegum á heimavelli í sumar – flest allra liða í deildinni. Það er því fyrst og fremst heldur dapurt gengi á útivelli sem hefur gert það að verkum að FH stóð lengi vel heldur langt fyrir utan toppbaráttuna. Atli segir að meiðsli og leikbönn hafi sett strik í reikninginn. „Árið 2009 keyrðum við liðið áfram á 12-13 leikmönnum allan fyrri hluta mótsins og þá unnum við tíu leiki í röð. Í ár hefur þetta verið eins og í fyrra – minni stöðugleiki og liðið hefur verið lengi í gang. Í fyrra komum við bakdyramegin inn í toppbaráttuna en við skulum sjá til hvernig lokaspretturinn verður hjá okkur í ár,“ segir Atli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Sjá meira