Höfuðborgarsvæðið helsta vígi ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2011 08:00 22 mörk gegn 8. ÍBV hefur farið á kostum á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Fréttablaðið/hag
Það verður mikið um að vera í Pepsi-deild karla í kvöld þegar 19. umferðin fer öll fram. Spennan jókst bæði á toppi og botni um síðustu helgi, þar sem Eyjamenn tóku meðal annars toppsætið af KR-ingum með góðri hjálp frá FH. Augu margra verða á leik Stjörnunnar og ÍBV í Garðabænum, enda verður spennandi að sjá hvernig Eyjaliðið ræður við pressuna sem fylgir því að sitja í toppsætinu. Einstaklega vel hefur reyndar gengið hjá Eyjamönnum í heimsóknum sínum til höfuðborgarinnar í sumar, en ÍBV-liðið er búið að vinna níu leiki og gera eitt jafntefli í tíu leikjum sínum á höfuðborgarsvæðinu í sumar. ÍBV vann nú síðast 3-1 sigur á Víkingum í Fossvoginum, sem var sjötti deildarleikur liðsins á höfuðborgarsvæðinu, en auk þess spilaði ÍBV þrjá bikarleiki í Reykjavík. ÍBV þurfti einnig að spila heimaleik sinn í forkeppni Evrópudeildarinnar á Vodafone-vellinum, þar sem Hásteinsvöllur er ekki löglegur fyrir Evrópuleiki. Eyjamönnum hefur ekki gengið jafn vel í öðrum útileikjum, enda búnir að tapa fjórum útileikjum í röð sem hafa ekki farið fram á höfuðborgarsvæðinu. ÍBV hefur alls unnið 7 af 14 leikjum sínum utan höfuðborgarsvæðisins á tímabilinu, þar af 6 af 9 leikjum sínum á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum. KR-ingar taka í kvöld á móti Grindavík á KR-vellinum í fyrsta leik sínum efir að hafa tapað í fyrsta sinn á tímabilinu á móti FH í Kaplakrika. FH-ingar hafa ekki tapað á heimavelli sínum í sumar og fá Fram í heimsókn í kvöld. Keflavík og Breiðablik mætast suður með sjó þar sem þau geta endanlega losað sig við falldrauginn með sigri en Víkingar gætu fallið úr deildinni í kvöld verði úrslitin þeim óhagstæð. Víkingar taka á móti Valsmönnum og fylgjast örugglega með fréttum frá Akureyri, þar sem Þór fær Fylki í heimsókn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Sjá meira