Íslenski boltinn

Kristján: Allt annað að sjá til liðsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
 „Við fengum ansi mörg færi í kvöld og ótrúlegt að við náum bara að koma boltanum einu sinni í netið,“ sagði Kristján Guðmundson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í kvöld.

„Við byrjuðum strax að sækja stíft á þá og fengum dauðafæri strax á upphafsmínútunni. Á meðan við höfum bara eins marks forystu þá er maður alltaf hræddur um að halda markinu sínu hreinu og sigla sigrinum heim, en það hafðist í kvöld og ég er ánægður með strákana“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×