Vitni fyrir Hæstarétti Eggert Briem skrifar 18. febrúar 2011 09:55 Skyldi einhver almennur kjósandi hafa borið vitni þegar Hæstiréttur tók fyrir kærur vegna framkvæmda kosninga til stjórnlagaþings? Hvað hefði ég sagt hefði ég borið vitni? Ég hefði kannske byrjað á að segja að ég hefði verið dálítið spenntur áður en ég fór að kjósa með konu minni á þessum hátíðardegi lýðræðisins. Við höfðum búið okkur vel undir kosninguna, líklega betur en fyrir flestar aðrar kosningar, reynt að setja okkur inn í yfirlýsingar sem flestra frambjóðenda og gert lista yfir þá vænlegustu að okkar mati. Listarnir voru ekki alveg eins. Á kjörstað var allt rólegt, engin biðröð. Ekki varð ég var við að skilrúm milli kjörklefa væru of lág né að neinn reyndi að kíkja á kjörseðil minn þegar ég stakk honum ósamanbrotnum í kjörkassann, enda erfitt að lesa fjögurra stafa tölur með smáu letri úr fjarlægð. Kannske hélt ég líka kjörseðlinum að mér til öryggis. Ekki tók ég eftir því hvort kjörkassinn væri úr pappa og þannig úr garði gerður að hægt væri að laumast í hann og stela seðlum. Það getur líka verið býsna erfitt að opna suma pappakassa eins og margir kannast sjálfsagt við, varla á færi annarra en þjálfaðra tollvarða. Ég tók heldur ekki eftir því að kjörseðlarnir væru í númeraröð, hvað þá að einhver gæti skráð númer kjörseðils míns. Í sem stystu máli þá fannst mér framkvæmd kosninganna hafa gengið furðu vel. Ég varð því leiður þegar ég frétti að Hæstiréttur hefði ógilt kosningarnar, kosningar sem mér fannst sýna styrk lýðræðisins. Hefði ég borið vitni fyrir Hæstarétti hefði ég kannske spurt í lokin hvort ég mætti spyrja dómarana tveggja spurninga. Sú fyrri hvort þeir hefðu mætt á kjörstað, og ef svo hvort þeir hefðu fundið eitthvað athugavert við framkvæmdina. En kannske hefði ég bara þurft að spyrja einnar spurningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 02.05.2026 Halldór Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Sjá meira
Skyldi einhver almennur kjósandi hafa borið vitni þegar Hæstiréttur tók fyrir kærur vegna framkvæmda kosninga til stjórnlagaþings? Hvað hefði ég sagt hefði ég borið vitni? Ég hefði kannske byrjað á að segja að ég hefði verið dálítið spenntur áður en ég fór að kjósa með konu minni á þessum hátíðardegi lýðræðisins. Við höfðum búið okkur vel undir kosninguna, líklega betur en fyrir flestar aðrar kosningar, reynt að setja okkur inn í yfirlýsingar sem flestra frambjóðenda og gert lista yfir þá vænlegustu að okkar mati. Listarnir voru ekki alveg eins. Á kjörstað var allt rólegt, engin biðröð. Ekki varð ég var við að skilrúm milli kjörklefa væru of lág né að neinn reyndi að kíkja á kjörseðil minn þegar ég stakk honum ósamanbrotnum í kjörkassann, enda erfitt að lesa fjögurra stafa tölur með smáu letri úr fjarlægð. Kannske hélt ég líka kjörseðlinum að mér til öryggis. Ekki tók ég eftir því hvort kjörkassinn væri úr pappa og þannig úr garði gerður að hægt væri að laumast í hann og stela seðlum. Það getur líka verið býsna erfitt að opna suma pappakassa eins og margir kannast sjálfsagt við, varla á færi annarra en þjálfaðra tollvarða. Ég tók heldur ekki eftir því að kjörseðlarnir væru í númeraröð, hvað þá að einhver gæti skráð númer kjörseðils míns. Í sem stystu máli þá fannst mér framkvæmd kosninganna hafa gengið furðu vel. Ég varð því leiður þegar ég frétti að Hæstiréttur hefði ógilt kosningarnar, kosningar sem mér fannst sýna styrk lýðræðisins. Hefði ég borið vitni fyrir Hæstarétti hefði ég kannske spurt í lokin hvort ég mætti spyrja dómarana tveggja spurninga. Sú fyrri hvort þeir hefðu mætt á kjörstað, og ef svo hvort þeir hefðu fundið eitthvað athugavert við framkvæmdina. En kannske hefði ég bara þurft að spyrja einnar spurningar.
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar