Hvað gerist í A-riðli á HM í dag? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2011 10:00 Útreikningarnir eru flóknir - sjálfsagt er þó Heiner Brand vel meðvitaður um möguleika Þýskalands í dag. Nordic Photos / AFP
Lokaumferð riðlakeppninnar á HM í handbolta fer fram í dag. Vísir kíkir á möguleikana í A-riðli en Ísland mun mæta þremur efstu liðunum úr þeim riðli í milliriðlakeppninni. Frakkland og Spánn eru bæði með fullt hús stiga og mætast í lokaleik riðilsins í kvöld. Þau eru bæði örugg áfram í milliriðlakeppnina með tvö stig og ræðst það í kvöld hvort liðið fer með fjögur stig eða þá hvort bæði taka þrjú stig með sér. Sigurliðið í þessum stig mun taka með sér fjögur stig í milliriðlakeppnina. Verði niðurstaðan jafntefli fara bæði lið með þrjú stig í milliriðilinn í Jönköping.Þýskaland ekki öruggt áfram Þýskaland er ekki öruggt með þriðja sæti A-riðils og þar með sæti í milliriðlinum. Þýskaland og Túnis eigast við klukkan 17.30 í dag. Þjóðverjar eru nú með fjögur stig og Túnis tvö. Ef Túnis vinnur leikinn, og bæði lið verða með fjögur stig í 3.-4. sæti, gildir árangur í innbyrðisviðureignum. Túnis er því öruggt áfram með sigrinum.Egyptar úr leik en geta enn haft áhrif Hins vegar flækjast málin ef Egyptaland vinnur Barein klukkan 17.00 í dag. Þá verða Egyptar einnig með fjögur stig. Þá þarf að reikna út markatölu þessara þriggja liða - Túnis, Egyptalands og Þýskalands - í innbyrðisviðureignum þeirra. Sú markatala liggur auðvitað ekki fyrir enn þar sem að Þýskaland og Túnis eiga eftir að mætast. Hins vegar er ljóst að Egyptaland er með mínus eitt mark í markatölu eftir sína leiki og það mun aldrei duga til að skáka bæði Túnisum og Þjóðverjum. Egyptar eru því úr leik. En Þjóðverjar græða nú á því að þeir unnu Egypta með fimm marka mun auk þess sem að Egyptar unnu Túnisa með fjögurra marka mun. Túnis þarf því vinna upp níu marka sveiflu í leiknum gegn Þjóðverjum í dag.Það þýðir eftirfarandi: Túnis vinnur með fjórum mörkum eða minna: Þýskaland áfram. Túnis vinnur með minnst fimm marka mun: Túnis áfram. Þýskaland hefur því efni á að tapa með fjögurra marka mun í kvöld - en aðeins ef að Egyptaland vinnur Barein.
Mest lesið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Spenna í körfunni og fjör í Bestu mörkunum Sport Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Enski boltinn „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Sjá meira