Guðmundur: Verðum að nýta okkur þeirra veikleika Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar 20. janúar 2011 07:30 Snorri Steinn hvetur hér félaga sína í íslensku vörninni. Fréttablaðið/Valli
Dagarnir eru langir hjá Guðmundi Guðmundssyni og þjálfarateyminu hans í Svíþjóð. Hann undirbjó lið sitt af kostgæfni í gær fyrir leikinn gegn Noreg í dag. Það var myndbandsfundur, æfing og svo annar fundur. „Það verða þrír myndbandsfundir fyrir þennan leik og við erum aðallega að fara yfir okkar sóknarleik. Við þurfum að bæta hann. Hann er of hikandi og við erum að taka of mikla áhættu í sóknarleiknum. Við erum að gefa slakar sendingar sem okkur er refsað fyrir. Það er allt of dýrt að fá öll þessi hraðaupphlaup á okkur. Það býr meira í okkur en við sýndum gegn Austurríki og stefnan er að laga það fyrir Noregsleikinn,“ sagði Guðmundur en hann segir alltaf þurfa að gera ákveðnar áherslubreytingar fyrir hvern leik. „Það sem við þurfum að varast hjá Norðmönnum er samvinna Borge Lund og Bjarte Myrhol í sókninni. Við þurfum að bregðast rétt við leikkerfunum þeirra og svo eru þeir með hættuleg hraðaupphlaup sem þeir munu klárlega reyna að keyra þétt í bakið á okkur þar sem við skiptum tveimur mönnum úr sókn í vörn,“ sagði Guðmundur sem ætti að eiga einhver svör enda þjálfar hann bæði Lund og Myrhol. „Það eru veikleikar í þeirra varnarleik og við ætlum að nýta okkur þá. Við munum koma með tvo til þrjá nýja hluti í okkar sóknarleik. Norðmenn hafa reynst okkur erfiðir síðustu ár og því myndi ég segja að það væri helmingsmöguleiki á sigri.“
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira