Myrhol: Það er þriggja milljón manna leynieyja við hliðina á Íslandi Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 20. janúar 2011 12:45 Bjarte Myrhol skorar hér á móti Íslandi á EM í Austurríki 2010. Mynd/AFP
Børge Lund er lykilmaður í norska handboltalandsliðinu en hann er líkt og margir aðrir í afar sérstakri stöðu fyrir landsleik Íslands og Noregs á HM í kvöld. Þrír samherjar Lund eru í íslenska liðinu og Guðmundur Guðmundsson þjálfari Íslands er yfirmaður Lund þegar hann mætir í vinnuna hjá þýska liðinu Rhein Neckar Löwen. Lund segir að Íslendingar séu með afar mikinn sigurvilja sem einkenni alla leikmenn liðsins. „Þeir eru ekki klikkaðir en svolítið sérstakir. Ég held að það sé meðfæddur hæfileiki hjá þeim að vilja spila vörn. Á síðustu 10-15 árum hefur liðið skipað sér í fremstu röð á heimsvísu og það er ekki langt síðan að Ísland var með hæsta hlutfall erlendra leikmanna í Þýskalandi," segir Lund í viðtali við Aftenposten. Bjarte Myrhol er í sömu stöðu og Lund en hann er samherji þeirra Ólafs Stefánssonar, Guðjóns Vals Sigurðssonar og Róberts Gunnarssonar. Myrhol og Róbert eru í hörkubaráttu um sæti í liðinu sem línumenn og Myrhol segir að Ísland sé með „leynieyju" við hliðina á Íslandi þar sem þeir sæki leikmenn sína. „Það búa 3 milljónir á þessari leynieyju," sagði Myrhol og er líkt og aðrir afar undrandi á því hve margir góðir handboltamenn hafa komið í gegnum tíðina frá Íslandi. Hann óttast að þjálfarinn Guðmundur Guðmundsson sé búinn að kortleggja leik Norðmanna frá A-Ö. „Hann er myndbandssérfræðingur og hefur eflaust legið yfir öllum leikjum okkar undanfarna daga," sagði Myrhol.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira