Allar 68 umsóknirnar um frest samþykktar 5. nóvember 2011 03:15 Alls eru 137 fyrirtæki í eigu bankanna. Langflest þeirra eru í faðmi stóru viðskiptabankanna þriggja, sem eru nánast einráðir á íslenskum bankamarkaði.
Allar 68 umsóknir banka um að fá að eiga fyrirtæki í óskyldum rekstri lengur en í 12 mánuði voru samþykktar. Þetta staðfestir Fjármálaeftirlitið (FME). Afar mismunandi er þó hversu langir veittir frestir eru. Alls eru 137 félög í óskyldri starfsemi í eigu íslenskra banka í dag. Þetta kemur fram í svari FME við fyrirspurn Félags atvinnurekenda (FA). Samkvæmt lögum mega bankar einungis eiga fyrirtæki í óskyldri starfsemi í 12 mánuði án þess að leita eftir undanþágu vegna þess eignarhalds hjá FME. Dæmi eru um að bankar eða dótturfélög þeirra hafi átt fyrirtæki sem keppa á samkeppnismarkaði í meira en 30 mánuði. Þau tímamörk voru sett inn í lög um fjármálafyrirtæki í fyrrasumar. Frá og með 25. júní 2011 hafa bankar þurft að sækja um undanþágu til að eiga fyrirtæki í lengri tíma en ár. FME hefur haft virkt eftirlit með því að þessu sé hlýtt og Gunnar Andersen, forstjóri eftirlitsins, sagði í Fréttablaðinu á miðvikudag að það væri tilbúið að beita viðurlögum gegn bönkum sem draga að selja fyrirtæki í óskyldum rekstri. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FA, segir mjög gott að þessar upplýsingar séu komnar fram. Það séu þó ákveðin vonbrigði að fyrirspurnum félagsins sé ekki svarað að fullu, en þau vildu meðal annars fá að vita hvaða tímafrestir hafi verið veittir og hvort þeir hafi verið framlengdir. „Okkur finnst mjög mikilvægt að þessi tölfræði sé öll birt. Við teljum að það sé mikill skortur á nánari svörum varðandi tímafrestina. Það kemur fram að 68 umsóknir um aukinn frest hafa borist eftirlitinu. Við vitum hins vegar ekki hversu langur frestur var gefinn.“ Í svarbréfinu neitar FME að „veita upplýsingar um hve langir frestir hafa verið veittir né hvaða fyrirtæki hafa fengið samþykki eftirlitsins um aukinn frest þar sem slíkar upplýsingar eru til þess fallnar að skaða þann markað sem fyrirtækin starfa á“. Eftirlitið rökstyður þessa afstöðu sína með því að aukin hætta sé á að hugsanlegir fjárfestar í fyrirtækjunum myndu einfaldlega bíða þar til sá frestur sem FME veitti rynni út og freista þess að kaupa fyrirtækið „er það er neytt í sölu“. thordur@frettabladid.is
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira