Íslendingurinn Tilikum snýr aftur eftir að hafa drepið þjálfara sinn 29. mars 2011 22:05 Fölsk ást? Tilikum virðist ekki víla fyrir sér að drepa fólk.
Drápsháhyrningurinn Tilikum, sem varð þjálfara sínum að bana snemma á síðasta ári, mun snúa aftur í Sea World í Orlando. Til stendur að háhyrningurinn muni leika listir sínar fyrir gesti strax á morgun. Það var í febrúar á síðasta ári sem Tilikum varð þjálfara sínum, Dawn Brancheau, að bana eftir að hann greip hana í kjaftinn og dró niður á botn laugarinnar með þeim afleiðingum að hún drukknaði. Þá var Tilikum grunaður um að hafa orðið tveimur öðrum manneskjum að bana. Andstæðingar þess að hvalurinn snúi aftur segja það tímaspursmál hvenær hvalurinn, sem er sex tonn að þyngd, muni skaða aðra manneskju. Tilikum er ekki ókunnugur Íslandi. Hann var fangaður af skipsverjum Guðrúnar HF í október 1983 ásamt tveimur öðrum háhyrningum í Berufirði og var um tíma til sýnis í Sædýrasafninu í Hafnarfirði. Hann var síðan seldur til Bandaríkjanna en íslenskir háhyrningar voru feikilega vinsælir á fyrri hluta áttunda áratugarins eftir að slíkar veiðar voru bannaðar í Kyrrahafinu 1972. Eftir að íslenski hvalurinn varð drekkti þjálfara sínum gerði sjónvarpsfréttastöðin CBS skoðanakönnun og kom þá í ljós að 77 prósent svarenda vildu láta drepa háhyrninginn. Pistlahöfundur dagblaðsins Olympian var þessu ósammála. Hann hvatti þá eigendur Tilikum að sleppa hvalnum við Íslandsstrendur. Menn voru þó efins um að leggja í annað Keikó-ævintýri. Nú er ljóst að Tilikum mun snúa aftur í skemmtanabransann. Vandræði Sea World eru þó hvergi lokið þar sem þeir standa í ströngu gagnvart bandarískum yfirvöldum, sem krefja skemmtigarðinn um 75 þúsund dollara vegna dauðsfalls þjálfarans.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Sjá meira