Handbolti

Umfjöllun: Guðjón Valur skaut Brasilíu í kaf

Henry Birgir Gunnarsson í Norrköping skrifar
Guðjón Valur fór á kostum gegn Brasilíu og skoraði alls 11 mörk.
Guðjón Valur fór á kostum gegn Brasilíu og skoraði alls 11 mörk. Mynd/Valli

Ísland vann fínan átta marka skyldusigur á Brasilíu á HM í kvöld. Lokatölur 34-26 en Ísland leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 19-12. Ísland er því með fullt hús eftir tvær umferðir og mætir Japan næst á mánudag.

Hvert mannsbarn vissi vel að Ísland er með talsvert sterkara lið en Brasilía en engu að síður þarf að hafa fyrir hlutunum gegn liði eins og Brasilíu. Þeir eru ólseigir og neita að gefast upp. Þeir hætta aldrei.

Það tók líka sinn tíma fyrir strákana okkar að hrista Brassanna af sér. Það hafðist þó að lokum og ekki hægt að kvarta yfir átta marka sigri

Það ánægjulegasta við leikinn var að sjá Guðjón Val Sigurðsson aftur í sínu besta formi en hann fór algjörlega á kostum í leiknum og skoraði 11 mörk í aðeins 13 skotum. Björgvin Páll var fínn í markinu, Alexander var sterkur sem fyrr og Þórir skoraði fín mörk.

Það er alltaf ákveðinn léttir að koma skylduverkenum frá. Næst bíður Japan og héldu margir fyrir mót að það væri auðvelt verkefni. Japan hefur aftur á móti slegið í gegn í fyrstu leikjunum og vann magnaðan sigur á Austurríki í dag.

Liðið er óútreiknanlegt og Guðmundur þarf klárlega að undirbúa liðið af kostgæfni fyrir þann leik.

Ísland-Brasilía 34-26 (19-12)

Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 11 (13), Alexander Petersson 7 (9), Þórir Ólafsson 5/1 (6/1), Ásgeir Örn Hallgrímsson 3 84), Arnór Atlason 2 (6), Snorri Steinn Guðjónsson 2 (6/1), Vignir Svavarsson 1 (1), Aron Pálmarsson 1 (4), Ingimundur Ingimundarson 1 (2), Róbert Gunnarsson 1 (1).

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13 (36/1) 36%, Hreiðar Levý Guðmundsson 4 (7) 57%.

Hraðaupphlaup: 10 (Guðjón 7, Ingimundur, Alexander, Vignir).

Fiskuð víti: 2 (Arnór, Guðjón)

Utan vallar: 4 mín.

Mörk Brasilíu: Felipe Ribeiro 7, Jose Pacheco 5, Guilherme Oliveira 4, Alexandro Pozzer 3, Gustavo Cardoso 2, Leonardo Bortolini 2, Gil Pires 1, Thiagus Santos 1, Vinicius Teixeira 1.

.

Smelltu hér til þess að komast á Boltavaktina. - góða skemmtun.



Ólafur: Þetta er löng keppni.



Ólafur hvíldur í kvöld en er ekki alvarlega meiddur.



































Fleiri fréttir

Sjá meira


×