Íslenski boltinn

Víkurfréttir: Haraldur til Noregs og framtíð Willums rædd í Keflavík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haraldur Freyr Guðmundsson er hér til hægri í baráttu við KR-inginn Grétar Sigfinn Sigurðarson.
Haraldur Freyr Guðmundsson er hér til hægri í baráttu við KR-inginn Grétar Sigfinn Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, verður ekki meira með Keflvíkingum á þessu tímabili því hann hefur gert samning til áramóta við norska félagið Start. Víkurfréttir segir frá þessu í kvöld og einnig frá því að knattspyrnudeild Keflavíkur sé að ræða framtíð Willums Þórs Þórssonar.

Keflvík er búið að tapa fjórum leikjum í röð í Pepsi-deild karla og liðið situr nú í þriðja neðsta sætið sex stigum frá fallsæti. Það er mikill missir fyrir liðið að sjá á eftir fyrirliða sínum úr miðri vörninni en liðið vantar tilfinnanlega meiri reynslu í sitt lið.

„Mikil viðbrögð hafa verið við ummælum Willums Þórs Þórssonar í viðtölum við fjölmiðla eftir tapleikinn gegn Fylki í gær. Í viðtali við Stöð 2 og Bylgjuna sagði þjálfarinn að það væri ekki nóg að hann einn legðist á árarnar. Þau ummæli fóru fyrir brjóstið á mörgum en í viðtali við vf.is sagði hann einnig ýmislegt sem þótti orka tvímælis," segir í fréttinni inn á Vf.is en stjórnarfundur í Knattspyrnudeild Keflavíkur verður haldinn annað kvöld.

Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að Willum Þór fái að klára tímabilið en að samningurinn verði ekki endurnýjaður við hann eftir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×