Umfjöllun: Völsungar velgdu Blikum undir uggum Henry Birgir Gunnarsson á Kópavogsvelli skrifar 26. maí 2011 17:42 Bjarki Baldvinsson var magnaður í liði Völsungs í kvöld. Mynd/Valli
2. deildarlið Völsungs kom skemmtilega á óvart í kvöld er liðið sótti Íslandsmeistara Breiðabliks heim. Blikar unnu 2-1 sigur en Völsungarnir voru svekktir eftir leik og máttu vera það enda voru þeir klaufar að skora ekki fleiri mörk. Það var talsverður skjálfti í gestunum til að byrja með. Blikarnir spiluðu þá sundur og saman og vörn Völsunganna var eins og gatasigti. Blikar komust síðan yfir eftir skelfileg mistök Kjartans í marki Völsunga. Viktor Unnar kom Blikum í 2-0 eftir að vörn Völsungs hafði opnast illa á nýjan leik. Í stöðunni 2-0 risu gestirnir á afturfæturnar og hófu að sækja að marki Blika. Þeir uppskáru vítaspyrnu fyrir hlé en spyrna Gunnars Jósteinssonar var afar slök og Ingvar varði vel. Nokkrum mínútum síðar komst besti maður vallarins, Bjarki Baldvinsson, í dauðafæri en skot hans var hörmulegt. 2-0 í hálfleik og Völsungar gátu svo sannarlega sjálfum sér um kennt að hafa ekki skorað í hálfleiknum. Þeir skoruðu þó 15 mínútum fyrir leikslok er Hrannar Björn lék listavel á Arnór Svein og lagði boltann í hornið. Smekklegt mark. Elfar Árni fékk tvö góð færi til þess að skora í seinni hálfleik en brást bogalistin. Það var ekki að undra að Völsungar væru svekktir enda fengu þeir færin til þess að jafna. Blikar hefðu hæglega getað gengið frá leiknum í upphafi en það vantaði drápseðlið í þá. Þeir urðu síðan værukærir og baráttuglaðir Völsungar gengu á lagið. Á endanum voru Blikar stálheppnir að þessi leikur færi ekki í framlengingu. Völsungar geta því borið höfuðið hátt eftir fínan leik í erfiðum aðstæðum en klassalið eins og Breiðablik á að gera mikið betur en það gerði í kvöld. Breiðablik-Völsungur 2-1 1-0 Rafn Andri Haraldsson (10.) 2-0 Viktor Unnar Illugason (28.) 2-1 Hrannar Björn Steingrímsson (75.) Áhorfendur: 350 Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 7. Skot (á mark): 10-7 (6-4) Varin skot: Ingvar 2 – Kjartan 0, Steinþór 3. Horn: 5-2 Aukaspyrnur fengnar: 9-11 Rangstöður: 6-2 Breiðablik (4-3-3) Ingvar Þór Kale 7 Kristinn Jónsson 6 Elfar Freyr Helgason 6 Kári Ársælsson 3 Arnór Sveinn Aðalsteinsson 4 Marko Pavlov 6 (79., Finnur Orri Margeirsson -) Guðmundur Kristjánsson 6 (66., Jökull Elísabetarson -) Rafn Andri Haraldsson 6 Haukur Baldvinsson 6 Olgeir Sigurgeirsson 5 Viktor Unnar Illugason 6 (69., Dylan McAllister 4) Völsungur (4-3-3) Kjartan Páll Þórarinsson 2 (46., Steinþór Már Auðunsson 7) Ármann Örn Gunnlaugsson 4 (72., Kristján Steinn Magnússon -) Gunnar Sigurður Jósteinsson 4 Jónas Halldór Friðriksson 6 Stefán Jón Sigurgeirsson 6 Haukur Hinriksson 5 Arnþór Hermannsson 5 Bjarki Baldvinsson 7 – Maður leiksins Aðalsteinn Jóhann Friðriksson 4 (46., Hafþór Mar Aðalgeirsson 4) Hrannar Björn Steingrímsson 6 Elfar Árni Aðalsteinsson 5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira