Hens: Megum ekki gera í brækurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2011 13:45 Pascal Hens í leik með þýska landsliðinu. Nordic Photos / Bongarts
Þýska landsliðið hefur sett sér það markmið að ná sjöunda sæti á HM í SVíþjóð og þar með þátttökurétt í undankeppni Ólympíuleikanna. Þýskaland mætir Íslandi í milliriðlakeppninni í dag. Liðin eru í ólíkum stöðum. Ísland vann alla sína leiki í B-riðli og er eina liðið í milliriðlinum með fjögur stig fyrir leiki dagsins. Þjóðverjar töpuðu hins vegar bæði fyrir Spáni og Frakklandi í A-riðli og eru stigalausir í milliriðlakeppninni. „Við megum alls ekki gera í brækurnar, jafnvel þótt svo að við séum að spila gegn sterkum liðum," sagði skyttan Pascal Hens við þýska fjölmiðla í dag. Það má sjá á umfjöllun þýskra fjölmiðla að væntingum fyrir leikinn í dag er stillt í hóf. Miðað við gengi liðsins á HM hingað til er ekki búist við miklu af þýska liðinu í dag, sérstaklega ekki þar sem að Ísland vann báða æfingaleiki liðanna í Laugardalshöllinni skömmu fyrir mót. „Ísland var ekki endilega sterkari aðilinn í báðum leikjunum ef við horfum aðeins á spilamennskuna," vildi Hens meina. „Við gerðum bara fleiri mistök." „Ef við höldum uppteknum hætti og spilum eins og við gerðum gegn Túnis, þá eigum við að minnsta kosti möguleika." Þýskaland vann Túnis með tíu marka mun í lokaumferð riðlakeppninnar og tryggði sér þar með sæti í milliriðlakeppninni. Markvörðurinn Johannes Bitter vildi ekki gera of mikið úr tapleikjunum á Íslandi. „Það var á Íslandi - nú erum við að spila á hlutlausum velli."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira