Króatar fóru illa með Argentínumenn - Svíar unnu Serba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2011 19:19 Blazenko Lackovic skoraði sex mörk fyrir Króata. Mynd/AFP
Króatía vann 18 marka sigur á Argentínumönnum, 36-18, í fyrsta leik liðanna í hinum milliriðlinum á HM í handbolta í dag. Svíar unnu 28-24 sigur á Serbum á sama tíma og eru því komnir með fjögur stig eins og Danir sem spila seinna í kvöld. Króatar skoruðu fjögur fyrstu mörkin á móti Argentínu, voru komnir í 11-2 eftir aðeins sextán mínútna leik og í 15-3 eftir 22 mínútur. Króatía var síðan 19-6 yfir í hálfleik og og sigurinn var því aldrei í hættu. Króatíska liðið bætti í á lokamínútunum og skoraði þá meðal annars sjö mörk í röð sem þýddi að í lokin skildu 18 mörk liðin af. Vedran Zrnic og Denis Buntic skoruðu sjö mörk fyrir Króatíu og Blazenko Lackovic var með 6 mörk. Sebastian Simonet skoraði 4 mörk fyrir Argentínu. Svíar eru komnir með fjögur stig eftir 28-24 sigur á Serbum. Svíar voru einu marki undir í hálfleik á móti Serbum (12-13) sem skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiksins. Svíar skoruðu þá þrjú mörk í röð og næstu mínútur voru æsispennandi þar sem liðið skiptust á að hafa forustuna. Svíar lögðu grunninn að sigrinum með því að vinna níu mínútna kafla frá 48. til 57. mínútu sem þeir unnu 7-1 og breyttu stöðunni úr 20-19 fyrir Serba í 26-21 fyrir Svía. Kim Ekdahl Du Rietz og Oscar Carlén skoruðu öll sjö mörkin á þessum kafla. Kim Ekdahl Du Rietz skoraði alls sex mörk í leiknum eins og Niclas Ekberg en Carlén var með fimm mörk. Mattias Andersson byrjaði í marki Svía en varði ekki skot. Johan Sjöstrand kom sterkur inn og varði alls 15 skot og 48 prósent skota sem komu á hann. Marko Vujin skoraði átta mörk fyrir Serba en Momir Ilic var með fimm mörk.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira