Guðmundur: Vörnin og markvarslan frábær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2011 07:00 Guðmundur Guðmundsson Fréttablaðið/Anton
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var sáttur með flottan sigur á Þjóðverjum í gær. „Ég er mjög sáttur við varnarleikinn sem var frábær og markvörsluna. Það tvennt stóð upp úr í frábærum leik og að halda Þjóðverjum í 23 mörkum er mjög sterkt. Það tekst ekki hjá hvaða liði sem er en auðvitað er þetta æfingaleikur og það ber að líta á hann sem slíkan. Við verðum að taka það góða úr þessum leik," sagði Guðmundur. „Sóknarleikurinn var mjög góður fyrir utan tíu mínútur í seinni hálfleik. Við þurfum að bæta ofan á hann og gera hann enn betri," sagði Guðmundur sem viðurkenndi að vörnin væri kannski aðeins á undan sókninni eins og staðan er núna. „Að þessu sinni lögðum við ofurkapp á vörnina og hún er á undan. Sóknin er að koma en hún er alls ekki slæm," sagði Guðmundur. Hann var ánægður með menn eins og Ingimund Ingimundarson sem skoraði þrjú hraðaupphlaupsmörk og Björgvin Pál Gústavsson sem varði vel í markinu. „Ég vil sjá enn fleiri mörk úr hröðum upphlaupum en það var ánægjulegt að sjá Ingimund því hann hljóp hraðaupphlaupin mjög vel og það er mjög jákvætt að hann skoraði þrjú mörk. Björgvin komst í gírinn og það var mjög sterkt fyrir hann að koma til baka á þennan hátt," sagði Guðmundur. „Það er leikur á morgun og þá þurfum við að fylgja þessu eftir. Við megum ekki fara á flug við það að vinna æfingaleik en það var margt jákvætt í kvöld og það er það sem skiptir máli," sagði Guðmundur. Aron Pálmarsson spilaði mikið í gær og stóð sig vel. „Ég er rosalega ánægður með þennan leik því við sýndum það í kvöld að við erum ennþá meðal toppþjóða í heiminum. Við erum búnir að vera slakir í síðustu leikjum en mættum bara stemmdir í þennan leik og sýndum úr hverju við erum gerðir," sagði Aron sem skoraði 5 mörk í gær. „Ég reyni að nýta það traust sem ég fæ frá Gumma. Það er allt frábært svo lengi sem við vinnum leikinn en það er ekkert að eyðileggja fyrir að maður nái að koma sterkur inn," sagði Aron. „Við sýndum flottan leik í dag og vonandi náum við að halda því áfram á morgun. Ef við gerum það þá erum við langt komnir með það að vera búnir að fínpússa þetta fyrir HM."
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira