Ísland fjarri því ónæmt fyrir markaðsóróanum 10. ágúst 2011 13:09 „
Þótt Ísland búi við gjaldeyrishöft og veiti okkur ákveðið skjól til skamms tíma er fjarri lagi að Ísland sé ónæmt fyrir því sem er að gerast úti í heimi." Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem fjallað er um stöðuna á alþjóðamörkuðum og áhrif hennar á Ísland. Í Markaðspunktunum segir að talsverður órói hefur verið á alþjóðamörkuðum síðustu misseri. Upptökin voru skuldavandi evruríkja en eftir að matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta skipti í sögunni datt botninn úr flestum mörkuðum. Auk óróa á fjármálamörkuðum hafa hagvaxtarhorfur úti í heimi versnað. Þótt Ísland búi við gjaldeyrishöft og veiti okkur ákveðið skjól til skamms tíma er fjarri lagi að Ísland sé ónæmt fyrir því sem er að gerast úti í heimi. Áhrifin eru tvíþætt. Í fyrsta lagi ef óróinn á fjármálamörkuðum dregst á langinn mun það valda því að erfiðara verður að sækja lánsfé erlendis. Í öðru lagi mun versnandi efnahagsumhverfi erlendis minnka útflutningstekjur landsins þ.e. lægra afurðaverð vegna minnkandi eftirspurnar og færri ferðamenn koma til landsins. Það sem af er ári hefur nokkuð dregið úr vöruskiptum við útlönd, en afgangurinn nam rúmlega 5% af VLF á fyrri árshelmingi ársins samanborið við afgang upp á 9% af VLF á sama tíma á árinu 2010. Ef gjaldeyrissköpun þjóðarinnar verður ekki nægjanleg til að standa við erlendar skuldbindingar Íslendinga þá mun það á endanum leiða til veikingar krónunnar. Þrátt fyrir að nýlegt skuldabréfaútboð íslenska ríkisins erlendis hafi heppnast vel verður hugsanlega erfiðara fyrir íslenska aðila að sækja sér fé erlendis verði áframhald á núverandi markaðsaðstæðum. Það sem mestu máli skiptir er að íslenskir aðilar t.d. Orkuveita Reykjavíkur og Landsbanki Íslands geti endurfjármagnað erlendu lánin sín á viðráðanlegum kjörum, ef það gerist hins vegar ekki gæti myndast þrýstingur á gengi krónunnar nema Seðlabankinn gangi á forðann, að því er segir í Markaðspunktunum. Myndin sem fylgir hér með sýnir áætlaðar afborganir Íslands af erlendum lánum sínum en horft er framhjá ríkissjóði og Seðlabanka Íslands þar sem þeir aðilar eiga erlendar eignir á móti erlendum lánum sínum. Gert er ráð fyrir endurfjármögnun hjá Landsvirkjun.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira