Erum ekki að yfirspenna bogann í Árbænum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2011 08:15 Finnur Ólafsson í baráttu við Andrés Má Jóhannesson, leikmann Fylkis, í leik í Pepsi-deildinni. Mynd/Anton
Finnur Ólafsson gekk í gær í raðir Fylkis frá ÍBV og samdi við Árbæinga til næstu þriggja ára. Finnur ákvað að fara frá ÍBV þar sem hann þurfti að flytja til Reykjavíkur af fjölskylduástæðum. „Eyjamenn sýndu því mjög mikinn skilning og voru jákvæðir gagnvart því að vinna með mér í þessu máli. Það er ástæðan fyrir því að ég er genginn í raðir Fylkis,“ sagði Finnur við Fréttablaðið. Finnur er fjórði leikmaðurinn sem Fylkir fær til sín eftir tímabilið en félagið hefur líka misst fimm leikmenn. Þórður Gíslason, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Fylki, segir að kaupin á Finni fari því ekki illa með fjárhagsáætlanir félagsins. „Alls ekki. Við misstum nokkra menn í sumar og því þurftum við að fylla í þeirra skörð. Það var því svigrúm fyrir Finn í okkar áætlunum,“ segir Þórður. Finnur átti eitt ár eftir af samningi sínum við ÍBV og þurfti því Fylkir að greiða fyrir hans komu til félagsins. „Við þurftum að greiða aðeins meira en stuðullinn segir til um en í stóra samhenginu töldum við þetta innan þeirra marka sem við höfum sett okkur.“ Samkvæmt afreksstuðlakerfi KSÍ er Finnur með stuðulinn 3 og því hefur lágmarksfélagsgjald verið 300 þúsund krónur fyrir hann. Þórður vildi þó ekki gefa upp hversu mikið Fylkir hefði greitt fyrir kappann. Hann sagði annars rekstur knattspyrnudeildarinnar ganga ágætlega og að allir leikmenn væru búnir að fá laun sín greidd. „Okkur hefur gengið illa að greiða niður skuldir frá árunum 2007 til 2008 en að öðru leyti hefur reksturinn verið á áætlun og ekki útlit fyrir annað en að svo verði einnig á næsta ári,“ segir Þórður og segir að leikmenn hafi haft skilning á því ef launagreiðslur hafi tafist. „Svona mál hafa alltaf verið rædd af yfirvegun og gengið vel að greiða úr þeim. Staðan í dag er sú að allir leikmenn hafa fengið laun sín greidd.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira