Guðjón: Þeir vita hvað þeir eru að fá Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2011 08:00 Fyrsti sigurleikur Guðjóns Þórðarsonar í Pepsi-deildinni næsta sumar verður sá hundraðasti hjá honum í efstu deild. Fréttablaðið/Anton
Guðjón Þórðarson, einn sigursælasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu, er mættur í deild þeirra bestu á nýjan leik. Hann skrifaði í fyrrakvöld undir þriggja ára samning við Grindavík. Guðjón snýr því aftur í efstu deild eftir tæplega fjögurra ára fjarveru en hann þjálfaði síðast Skagamenn fram á mitt sumar 2008. „Ég náði að komast upp um deild þrátt fyrir allt," segir Guðjón í léttum tón en hann barðist um Pepsi-deildarsætið síðasta sumar sem þjálfari BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni. „Ég hef oft áður skoðað þann möguleika að fara í Grindavík og ég þekki vel til þar. Ég kom heim í byrjun síðustu viku og viku seinna er ég búinn að ganga frá þessu," segir Guðjón en ætlar hann þá ekki að styrkja liðið með nýjum leikmönnum? Fyrsta mál að halda Ólafi„Hvernig styrkir maður liðið? Það er hægt bæði með þjálfun, bæði andlegri og líkamlegri og með skipulagi og öllu því tengdu. Mig langar að sjá hvað þessir strákar geta og suma er erfitt að dæma því ég held að sumir þeirra hafi ekki verið í neinu úrvalsformi. Ég held að það sé hægt að bæta bæði skipulag og form á liðinu," segir Guðjón. Guðjón leggur mikla áherslu á því að halda Ólafi Erni Bjarnasyni, forvera hans, í starfinu. „Það er lykilatriði fyrir mig að halda honum því hann er bæði reyndur og góður knattspyrnumaður. Hann getur verið akkerið í varnarleiknum sem þarf að styrkja og það er mikilvægt að hafa mann með Grindavíkurhjarta sem er tilbúinn til að takast á við verkefnið.Það er fyrsta mál á dagskrá," segir Guðjón og segir að hann sé þegar búinn að ræða við Ólaf um hvernig hlutirnir gengu fyrir sig síðasta sumar. Guðjón segist líka ætla að útrýma „þetta reddast" hugarfarinu í Grindavík. Aldrei tekið við neinu fullmótuðu„Það er miklu meiri sköpun í því að taka við liði og búa til nýtt lið en að erfa eitthvað og taka við einhverju fullmótuðu. Ég hef aldrei tekið við einhverju fullmótuðu. Þegar ég fór til KA þá voru þeir hvorki fugl né fiskur og það breyttist. Ég kom til KR og þá höfðu þeir ekki unnið titil í 27 ár og það breyttist. Ég tók Skagann þegar hann var fallinn og það breyttist," segir Guðjón og bendir einnig á síðasta starfið sitt fyrir vestan. „Það var mikil áskorun og ögrun í því að fara vestur í nánast ekki neitt. Þegar ég réði mig í þá vinnu þá var varla til lið þar. Það var mikil áskorun en það sást að það er hægt að gera ákveðna hluti með skynsemi og skipulagi. Í ágúst var liðið komið í undanúrslitleik bikarsins og allt landið vissi að það var eitthvað stórkostlegt og skrýtið að gerast þarna. Það er sama með Grindavík. Það er geysileg áskorun í þessu verkefni fyrir mig sem fagmann. Ég mun ráðast á það," segir Guðjón Þórðarson en nafnið Guðjón Þórðarson kallar á væntingar. „Ég geri mér alveg grein fyrir því og það er bara gott. Það er mjög gott til þess að vita að fólk kalli á árangur ef ég er annars vegar. Það er prófsteinn núna á allt apparatið í Grindavík og bæinn í heild sinni. Þeim getur líkað hugmyndin að fara í fremstu röð en eru þau tilbúin til að gera það sem til þarf?" segir Guðjón en þarf hann að sanna eitthvað næsta sumar? Þarf ekki að sanna neitt„Ég þarf ekki að sanna neitt. Það vita allir hvað þeir eru að fá og það vita flestir við hverju má búast. Þetta verður ekkert auðvelt og ég hef aldrei sagt það. Það er aldrei auðvelt að búa til sigurlið," segir Guðjón og bætir við: „Það verður gaman að fara í efstu deildina. Ég hef fylgst með henni vel og vandlega. Ég þekki vel til og ég þekki líka þjálfarana sem eru að störfum enda voru margir þeirra leikmenn hjá mér. Ég er af þessari kynslóð sem er í raun farin af vettvangi. Bjarni Jó er næstur mér og svo eru þetta miklu yngri menn. Aldur er afstætt hugtak og þú ert aldrei eldri en þú vilt vera. Ég nýt góðs af því að vinna með ungum mönnum og er ungur í anda. Ég kem fullur af orku og fullur af krafti inn í þetta verkefni og ég vona að ungu mennirnir sem ætla að vinna með mér hafi sama eldmóð og karlinn hefur," sagði Guðjón að lokum. Guðjón og Grindavík í gegnum tíðina2. júlí og 31. ágúst 1991 - ÍA vinnur öruggan sigur í b-deildinni á sínu fyrsta ári undir stjórn Guðjóns en tvö af þremur deildartöpum liðsins á tímabilinu koma í leikjum á móti Grindavík sem endar í 4. sæti deildarinnar. Báðir leikirnir töpuðu 0-1 en ÍA skoraði 55 mörk í hinum 16 leikjum sumarsins eða 3,4 að meðaltali í leik.28. ágúst 1994 - KR vinnur 2-0 sigur á Grindavík í bikarúrslitaleiknum 1994 og Guðjón Þórðarson verður fyrsti þjálfari KR í 27 ár til að vinna titil með félaginu. Rúnar Kristinsson og Einar Þór Daníelsson skora mörkin.15. september 1996 - Skagamenn vinna ótrúlegan 6-2 sigur á Grindavík þar sem þeir urðu manni færri á 33. mínútu og 0-2 undir eftir 53 mínútur. Guðjón skellti mönnum fram í sóknina, liðið skoraði sex mörk með tíu menn á móti ellefu og vann gríðarlega mikilvægan sigur í leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum.7. júlí 2008 - Guðjón tapar 1-2 á móti Grindavík í síðasta heimaleik sínum sem þjálfari ÍA. Stefán Þórðarson kemur ÍA í 1-0 í fyrri hálfleik en tveir núverandi leikmenn Grindavíkur, Jósef Jósefsson og Jóhann Helgason, tryggja Grindavík sigur í seinni hálfleik. Guðjóni er sagt upp störfum eftir tvo tapleiki til viðbótar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fótbolti Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Fleiri fréttir Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Sjá meira