Ögmundur ítrekað spurður hvenær og hvernig hann ætli að svara Nubo 8. nóvember 2011 18:56
Pirringur Samfylkingarmanna í garð atvinnustefnu Vinstri grænna opinberaðist á Alþingi í dag þegar Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, reyndi að fá Ögmund Jónasson innanríkisráðherra til að svara því hvenær og hvernig hann hygðist afgreiða ósk Kínverjans Nubo um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Fyrirspurnin bar þess merki að óþreyju er farið að gæta í Samfylkingunni gagnvart ráðherra Vinstri grænna en Kristján benti á að nú væru hátt í tveir og hálfur mánuðir liðnir frá því erindið barst inn en ekkert svar væri komið. Pirringurinn leyndi sér ekki í garð atvinnustefnu samstarfsflokksins þegar fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar sagði að nú væri komið þetta ,,eitthvað annað" sem talað hefði verið um í svo langan tíma um leið og hann spurði hvenær ráðuneytið hygðist svara erindi Nubos um undanþágu til að kaupa jörðina. ,,Og er einhver ástæða til að halda að það svar verði neikvætt?" spurði Kristján, og sagði að sér hefði fundist koma fram í svörum ráðherrans í fjölmiðlum um málið að hann væri mjög neikvæður fyrir því. Ögmundur sagði að hér væri um stórt mál að ræða og það yrði vandað til úrskurðarins, sem hann vonaðist til að lægi fyrir fljótlega, eða svo fljótt sem auðið væri. Kristján ítrekaði þá seinni spurningu sína um hvort ráðherrann hygðist veita undanþáguna ,,eða hvort þetta á að liggja í ráðuneytinu" og sagði sporin hræða. Ögmundur sagði það rétt hjá þingmanninum að sporin hræddu. ,,Við þekkjum ýmsa loftkastalasmiði frá fyrri árum og ég hélt nú að Íslendingar vilji stíga varlega til jarðar þegar menn með dollara í augunum eða mikla fjármuni á milli handa, meinta, eru hér á sveimi. Við tökum þann tíma sem við þurfum," sagði ráðherrann.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Sjá meira