Valsmenn fengu aftur skell á heimavelli - Keflavík vann með 30 stigum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2011 21:04 Magnús Þór Gunnarsson og Charles Michael Parker. Mynd/Baldur Beck
Valsmenn töpuðu þriðja leiknum í röð í Iceland Express deild karla þegar Keflvíkingar komu í Vodafonehöllina í kvöld og unnu 30 stiga stórsigur, 110-80. Bæði Reykjanesbæjarliðin hafa því unnið stóra sigri á Hlíðarenda í fyrstu tveimur heimaleikjum nýliða Vals í vetur. Steven Gerard Dagustino skoraði 34 stig fyrir Keflavík í kvöld og Charles Michael Parker var með 22 stig. Magnús Þór Gunnarsson skoraði síðan 18 stig. Darnell Hugee var með 26 stig og 10 fráköst hjá val og Austin Magnus Bracey bætti við 19 stigum. Curry Collins skoraði hinsvegar aðeins 5 stig á 28 mínútum. Valsmenn byrjuðu vel og komust í 9-3 og 11-6 þegar fjórar mínútur voru liðnar af leiknum. Steven Gerard Dagustino setti þá tvær þriggja stiga körfur í röð og Keflvíkingar voru komnir í gang. Keflavík var síðan komið með 12 stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, 32-20, og umræddur Steven Gerard Dagustino var þegar kominn með fjóra þrista og 16 stig. Keflvíkingar og Dagustino héldu áfram í öðrum leikhlutanum sem Keflavíkurliðið vann 28-19 og var því komið með 21 stigs forskot í hálfleik, 60-39. Dagustino hitti úr 7 af 9 þriggja stiga skotum sínum í hálfleiknum og skoraði 29 stig á 17 mínútum. Seinni hálfleikurinn var algjört formsatriði en Keflvíkingar unnu bæði þriðja og fjórða leikhluturinn og munurinn endaði því í 30 stigum.Valur-Keflavík 80-110 (20-32, 19-28, 21-23, 20-27)Valur: Darnell Hugee 26/10 fráköst, Austin Magnus Bracey 19/5 fráköst, Igor Tratnik 13/5 fráköst, Kristinn Ólafsson 5, Curry Collins 5, Birgir Björn Pétursson 4/4 fráköst, Benedikt Blöndal 3, Alexander Dungal 3, Bergur Ástráðsson 2.Keflavík: Steven Gerard Dagustino 34, Charles Michael Parker 22/8 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 18/6 fráköst, Arnar Freyr Jónsson 9, Jarryd Cole 7/7 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 6, Valur Orri Valsson 6, Ragnar Gerald Albertsson 4, Hafliði Már Brynjarsson 3, Almar Stefán Guðbrandsson 1.
Dominos-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Sjá meira