Íslenski boltinn

ÍBV komið í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson á Fjölnisvelli skrifar
ÍBV er komið í undanúrslit Valitor-bikars karla eftir 1-2 sigur á Fjölni í Grafarvoginum. Leikurinn var hrútleiðinlegur og ekkert gerðist í honum fyrr en á síðustu 15 mínútunum.

Fyrri hálfleikur var ævintýralega leiðinlegur og nánast ekkert markvert gerðist í honum.

Síðari hálfleikur var litlu skárri. Sóknarleikur beggja liða í molum og fátt um fína drætti.

Þegar fimmtán mínútur lifðu leiks dæmdi Þóroddur Hjaltalín vítaspyrnu er Gunnar Valur Gunnarsson virtist brjóta á Denis Sytnik.

Bryan Hughes tók vítið og skoraði örugglega. Á þessum tímapunkti var ekkert að gerast í leiknum og fátt sem benti til þess að annað hvort liðið myndi skora.

Fjölnismenn, sem höfðu ekkert sótt í leiknum fram að þessu, settu í gírinn eftir mark Eyjamanna og fyrirliðinn Gunnar Valur náði að stanga boltann í netið eftir hornspyrnu Kristins Freys. Boltinn fór rétt inn fyrir línuna.

Fimm mínútum fyrir leikslok náði Brynjar Gauti að skalla boltann í netið eftir aukaspyrnu Hughes og það mark dugði til þess að koma Eyjamönnum í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×