Íslenski boltinn

Heimir: Við spiluðum aldrei sem lið í dag

Henry Birgir Gunnarsson á Fjölnisvelli skrifar
Heimi var kalt í Grafarvoginum í dag og hann skartaði þessari fínu húfu í rigningunni.
Heimi var kalt í Grafarvoginum í dag og hann skartaði þessari fínu húfu í rigningunni. mynd/vilhelm
Heimi Hallgrímssyni, þjálfara ÍBV, var létt eftir sigurinn á Fjölni í dag í átta liða úrslitum Valitor-bikars karla. Hans menn voru ekki með hugann við verkefnið en sluppu með skrekkinn.

"Auðvitað er mér létt. Fjölnismenn fengu svo sannarlega færin til þess að jafna," sagði Heimir eftir leikinn en hann viðurkenndi að sitt lið hefði líklega verið að hugsa of mikið um Evrópuleikinn á fimmtudag.

"Við reyndum að halda fókus á þennan leik enda sæti í undanúrslitum í boði. Við vorum mjög ólíkir sjálfum okkur og spiluðum aldrei sem lið í þessum leik."

Eyjamenn verða áfram í bænum áður en þeir fljúga út til Írlands þar sem liðið mætir Saint Patrick´s í Evrópudeildinni á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×