Íslenski boltinn

Elfar Freyr Helgason á leið til AEK

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Allt stefnri í að Elfar Freyr Helgason verði næsti atvinnumaður Íslendinga
Allt stefnri í að Elfar Freyr Helgason verði næsti atvinnumaður Íslendinga Mynd/Valli
Knattspyrnumaðurinn Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki er á leiðinni til gríska félagsins AEK Aþenu. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverðið en Elfar Freyr á eftir að gangast undir læknisskoðun og semja um kaup og kjör.

Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks staðfesti yfirvofandi félagaskipti í samtali við Vísi. Einar Kristján segir að Elfar Freyr fari utan að loknum leiks Breiðabliks gegn Þór á laugardaginn. Standist Elfar Freyr læknisskoðun og takist samningar um kaup og kjör verði hann leikmaður AEK. Arnar Grétarsson sem spilaði með Breiðablik á sínum tíma er yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK.

Óvíst er hvort Elfar Freyr spili fleiri leiki með Breiðablik í sumar. Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokar 1. september og því ljóst að Elfar Freyr spilar ekki lengur með Breiðablik en til þess tíma. Síðasta umferðin í ágúst er 17. umferðin þegar Blikar mæta Valsmönnum sunnudaginn 28. ágúst.

Elfar Freyr er uppalinn hjá Breiðabliki og var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði félagsins á síðustu leiktíð. Þá hefur hann verið fastamaður í leikmannahópi Íslands 21 árs og yngri. Hann var í leikmannahópnum á EM í Danmörku í júní en kom ekkert við sögu.

Ekki hefur náðst í Elfar Frey þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×